Fræðslunetið – símenntun á Suðurlandi leitar að metnaðarfullum verkefnastjóra til að starfa á starfsstöð Fræðslunetsins á Selfossi.
Fræðslunetið – símenntun á Suðurlandi leitar að metnaðarfullum verkefnastjóra til að starfa á starfsstöð Fræðslunetsins á Selfossi. Um er að ræða fullt stöðugildi, sem skiptist þannig að 75% snýr að verkefnastjórnun í fræðslu fatlaðs fólks og 25% í verkefnastjórnun almennt í fullorðinsfræðslu. Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2025.