Raunfærnimat í sjúkraliðanámi 

Fyrir hverja er raunfærnimatið? 

Raunfærnimat í sjúkraliðanámi er ætlað einstaklingum sem hafa reynslu af umönnun og aðhlynningu, til dæmis á hjúkrunarheimilum, sjúkrahúsum, í heimahjúkrun eða í annarri heilbrigðis- og umönnunarþjónustu. 

Hvað get ég fengið mikið metið? 

Í raunfærnimati er metin sú þekking og reynsla sem þú hefur aflað þér í starfi. Út frá niðurstöðum matsins getur þú fengið hluta sjúkraliðanáms metinn og þar með stytt leiðina að til að ljúka náminu. 

Hvar get ég klárað námið? 

Eftir raunfærnimat getur þú lokið því sem uppá vantar í sjúkraliðanámi í framhaldsskólum sem bjóða uppá námið, annað hvort í staðnámi, fjarnámi eða blöndu af hvoru tveggja. 

Hverju breytir það fyrir mig ef ég klára námið? 

Eftir að hafa lokið sjúkraliðanáminu færð þú starfsréttindi sem sjúkraliði og aukna möguleika á störfum innan heilbrigðis- og umönnunarþjónustu.