Raunfærnimat í almennri starfshæfni er ætlað einstaklingum sem hafa reynslu af störfum á vinnumarkaði en hafa ekki lokið formlegu námi á framhaldsskólastigi.
Raunfærnimatið hentar fólki sem vilja styrkja stöðu sína á vinnumarkaði, er á krossgötum, er leitandi eða er að velta fyrir sér nýju starfi. Einnig fólki í starfsendurhæfingu sem t.d. hefur orðið fyrir kulnun.
Hvað get ég fengið mikið metið?
Í raunfærnimatinu er metin sú þekking og færni sem þú hefur aflað þér í starfi, námi eða lífsreynslu.
Hverju breytir það fyrir mig ef ég klára raunfærnimatið?
Ferlið getur reynst mjög eflandi þar sem fólk áttar sig á eigin styrkleikum, sækir jafnvel um störf á vinnumarkaði sem það treysti sér ekki til áður og opnar á fleiri möguleika til frekara náms eða starfa.