Fræðslunetið er aftur að bjóða upp á raunfærnimat fyrir sjúkraliða. Raunfærnimat er frábær leið fyrir fólk með reynslu í umönnun til að fá færni og þekkingu metna, og stíga næsta skref í átt að því að verða sjúkraliði.
Fyrir hverja er raunfærnimat?
Þetta úrræði hentar þér ef þú:
hefur hug á að verða sjúkraliði
ert með að minnsta kosti þriggja ára starfsreynslu í umönnun
ert 23 ára eða eldri
vilt fá færni þína og þekkingu metna og staðfesta
Skráning stendur yfir
Ef þú hefur áhuga á að taka þátt eða vilt fá nánari upplýsingar, hafðu samband við okkur.