Search
Close this search box.
Á myndinni eru f.v. Sveinn Aðalsteinsson formaður stjórnar Vísindasjóðs Suðurlands, Anna Selbann styrkþegi, Hugrún Hannesdóttir styrkþegi, Birna Lárusdóttir styrkþegi og Hr. Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands.

Þann 12. janúar fór fram hátíðarfundur Vísinda- og rannsóknarsjóðs Suðurlands fyrir árið 2022. Fundurinn var nú, í fyrsta skipti eftir Covid, haldinn með hefðbundnum hætti í sal Fjölbrautaskóla Suðurlands. Meginefni fundarins var að úthluta styrkjum til rannsóknarstarfs á Suðurlandi. Umsækjendur um styrki voru fimm þetta árið og voru þrír þeirra styrktir um samtals 1.600.000 kr. Það var Sveinn Aðalsteinsson sem kynnti niðurstöður stjórnar sjóðsins og forseti Íslands Hr. Guðni Th. Jóhannesson afhenti styrkina.

Fræðslunetið óskar styrkþegum innilega til hamingju með styrkina og þakkar öllum þeim fjölmörgu bakhjörlum á Suðurlandi sem standa að sjóðnum fyrir stuðninginn í gegnum árin.