Search
Close this search box.
Fræðslunetið skipuleggur sérsniðin námskeið samkvæmt óskum viðskiptavina. Það annast einnig umsýslu og utanumhald vegna funda og námskeiða sé eftir því leitað. Hægt er að leigja húsnæði fyrir fundi og kennslu í Fjölheimum á Selfossi. Einnig er hægt að leigja aðstöðu fyrir fjarfundi, sjá nánar

Fræðsluráðgjöf

Fræðslunetið getur veitt fyrirtækjum  fræðsluráðgjöf. Ráðgjöfin felst í að meta þörf fyrir starfsmenntun í fyrirtækjum og vinna fræðsluáætlun í kjölfarið. Fyrirtæki sem fara óska eftir slíkri ráðgjöf geta sótt um styrk í verkefnið ,,Fræðslustjóri að láni” hjá starfsmenntasjóðum og mannauðssjóðum. Hægt er að sækja um hjá ÁTTINNI

Hafðu samband við Fræðslunetið og fáðu upplýsingar um ráðgjöfina hjá ráðgjöfum okkar. 

Ráðgjafar Fræðslunetsins eru:

Grunnhugmyndin á bak við fræðsluráðgjöf er sú að bestur árangur næst við uppbyggingu starfsmanna þegar samvinna er á milli stjórnenda og starfsmanna í verkefninu. Aðferðir og verkfæri eru því hönnuð þannig að bæði yfirmenn og starfsmenn geti tekið þátt í ferlinu frá upphafi til enda. Það tryggir gagnkvæman skilning, áhuga og þátttöku allra sem vinna í fyrirtækinu og eykur líkur á varanleika og áframhaldandi uppbyggingu.

Starfsmenntasjóðir verkalýðsfélaga og mannauðssjóðir styrkja verkefni af þessu tagi.