Guðjónína Sæmundsdóttir formaður Kvasis, samtaka símenntunarmiðstöðva skrifar:
Í mörgum tilfellum er það stórt skref fyrir fólk sem hefur ekki lokið formlegri framhaldsskólagöngu að setjast aftur á skólabekk og sækja sér aukna menntun. Ótal spurningar vakna, eins og t.d.; „á ég eitthvert erindi á skólabekk eftir öll þessi ár?“ eða „ræð ég nokkuð við þetta verkefni?“
Þetta eru fullkomlega eðlilegar spurningar. Það gleðilega er að nær undantekningalaust er fólk sem lætur verða af því að sækja sér aukna þekkingu fullt þakklætis fyrir að hafa tekið skrefið. Það er líka ánægjulegt að í fjölmörgum tilfellum er þetta skref aðeins rifa á glugga inn í heim tækifæra sem fólk nýtir sér síðan í framhaldinu.
Við sem sinnum símenntun og framhaldsfræðslu á Íslandi höfum ríku hlutverki að gegna. Við störfum samkvæmt samningi við mennta- og menningarmálaráðuneytið að framhaldsfræðslu og símenntun, á grunni laga um framhaldsfræðslu frá 2010 og samkvæmt samningi við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Í þessu felst sú skylda okkar að þjónusta þann hóp sem hefur ekki lokið formlegri framhaldsskólamenntun með námskeiðahaldi af ýmsum toga, náms- og starfsráðgjöf og einnig framkvæmum við raunfærnimat.
Verkefni okkar eru umfangsmikil og mikilvægur þáttur í menntun landsmanna og þau eru mun stærri en margir gera sér grein fyrir. Ellefu símenntunarmiðstöðvar eru í landinu, í öllum landsfjórðungum, og auk þess fjöldi námsvera sem auðveldar fólki í hinum dreifðu byggðum að sækja sér þá þekkingu sem hugurinn stendur til, án þess að það þurfi að flytja á brott úr sinni heimabyggð. Fjarnám hefur breytt búsetuskilyrðum fólks og á komandi árum munum við án nokkurs vafa sjá frekari skref tekin í þeim efnum.
Kvasir – samtök fræðslu- og símenntunarmiðstöðva á Íslandi voru stofnuð árið 2000 og mynda þéttriðið net hringinn í kringum landið. Eftirtaldar fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar eiga aðild að Kvasi: Austurbrú, Farskólinn – miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra, Framvegis – miðstöð símenntunar, Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Fræðslunetið – símenntun á Suðurlandi, Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum, Mímir – símenntun, SÍMEY – Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar, Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi, Viska – fræðslu- og símenntunarmiðstöð Vestmannaeyja og Þekkingarnet Þingeyinga.
Verkefni símenntunar- og fræðslumiðstöðvanna eru af ýmsum toga. Til dæmis einstaklingsnámskeið, samstarf við atvinnulífið um símenntun starfsmanna og fullorðinsfræðsla fatlaðra. Við veitum fólki ráðgjöf um leiðir til frekari menntunar og viljum vinna að því að nám og reynsla sem aflað er utan hins formlega skólakerfis sé metin að verðleikum. Þannig er það okkar hlutverk að taka þátt í að hækka menntunarstig landsmanna.
Okkar verkefni innan Kvasis er að ná augum og eyrum allra landsmanna og bjóða upp á og hvetja til símenntunar og framhaldsmenntunar. Sem fyrr er afar mikilvægt að hlúa að menntun í landinu því aukin sérhæfing á öllum sviðum kallar á aukna þekkingu og endurmenntun. Hlutverk okkar á símenntunar- og fræðslumiðstöðvunum í þeim efnum er stórt og við erum hér eftir sem hingað til reiðubúin að leggja okkar lóð á vogarskálarnar.
Höfundur er formaður Kvasis – samtaka fræðslu- og símenntunarstöðva