Fjallað verður um sögu og menningu sveitanna. Helstu efnisþættir verða: jarðfræði uppsveitanna, fornleifar og saga frá landnámi til 1711, glæpir og refsing, starfsemi kvenfélaganna og ungmennafélaganna, áhrif Kreppunnar og sauðasölunnar á samfélagið, stofnun og saga Þjóðgarðsins á Þingvöllum.
Námskeiðið verður haldið á fimmtudagskvöldum, dagana 25.9., 2.10., 9.10. og 16.10 í Bláskógabyggð og Grímsnes- og Grafningshreppi.
Námskeiðið er haldið í samvinnu Fræðslunetsins, Bláskógabyggðar og Grímsnes- og Grafningshrepps og niðurgreitt af þeim.
- Tími og staðir: Fimmtudagskvöld kl. 20-22, Borg, Bláskógaskóli Reykholti og Bláskógaskóli Laugarvatni. Sjá nánar efnisþætti og leiðbeinendur.
- Verð: 11.900
- Fjöldi: Lágmark 12
- Leiðbeinendur: Guðfinna Ragnarsdóttir jarðfræðingur, Margrét Hallmundsdóttir fornleifafræðingur, Gunnar Karlsson sagnfræðingur, Þorsteinn Tryggvi Másson héraðsskjalavörður, Margrét Sveinbjörnsdóttir menningarmiðlari, Jón M. Ívarsson sagnfræðingur, Bjarni Harðarson bóksali og Einar Á. Sæmundsen fræðslufulltrúi.