Það er okkur hjá Fræðsluneti Suðurlands sönn ánægja að segja frá því að Jónína Sigurðardóttir, fyrrum nemandi hjá Fræðslunetinu, hlaut í dag viðurkenningu sem fyrirmynd í námi fullorðinna á ársfundi Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.
Saga Jónínu er áhrifamikil áminning um að stundum þarf aðeins eitt skref, eina hvatningu og einhvern sem hefur trú á manni til að opna dyr að nýjum tækifærum.
Eitt námskeið varð upphafið að miklu ævintýri
Námsvegferðin hófst árið 2019 þegar Jónína, sem þá starfaði í ferðaþjónustu, sá auglýsingu frá Fræðsluneti Suðurlands um námskeið í meðferð matvæla. Hún ákvað að skrá sig og segir sjálf að námskeiðið hafi kennt henni heilmikið sem nýttist henni vel í starfi.
Að námskeiðinu loknu hvatti Sólveig fyrrum námsráðgjafi hjá Fræðslunetinu hana til að fara í raunfærnimat. Jónína var þá 43 ára og hafði litla trú á því að frekara nám væri fyrir hana. Hún lét þó til leiðast og niðurstaðan kom henni á óvart. Með raunfærnimatinu fékk hún stóran hluta námsins metinn.
Það varð hvatningin sem þurfti til að halda áfram.
Krefjandi leið sem skilaði árangri
Jónína hóf fjarnám í Menntaskólanum í Kópavogi og samhliða náminu var hún í fullu starfi. Hún lýsir námsleiðinni sem krefjandi og segir skipulag, stuðning og hvatningu fólksins í kringum sig hafa skipt sköpum.
Árangurinn lét ekki á sér standa. Vorið 2023 útskrifaðist hún sem matsveinn og um jólin sama ár sem matartæknir.
Í dag starfar Jónína sem yfirmaður í eldhúsi Kirkjuhvols, hjúkrunarheimilisins á Hvolsvelli. Hún hefur starfað hjá Mötuneyti Rangárþings eystra frá árinu 2020, fyrst sem almennur starfsmaður, síðar sem aðstoðarmaður yfirmanns og nú sem yfirmaður í eldhúsi.
„Hún sá eitthvað og trúði á að ég gæti þetta“
Í ræðu sinni lagði Jónína mikla áherslu á fólkið sem studdi hana og hvatti áfram. Sérstaklega nefnir hún Sólveigu og Steinunni hjá Fræðsluneti Suðurlands. Um hvatningu Sólveigar segir hún:
„Án Sólveigar hefði ég aldrei látið mér detta í hug að ég ætti nokkurt erindi út í þetta ævintýri. […] En hún sá eitthvað og trúði á að ég gæti þetta og fyrir það verð ég henni ævinlega þakklát.“
Jónína þakkar einnig Steinunni fyrir að hafa treyst henni fyrir námsverinu á Hvolsvelli. Þar hafði hún athvarf til að læra og gat nýtt aðstöðuna þegar námið kallaði á.
„Eitt lítið námskeið breytti öllu“
Saga Jónínu sýnir vel hversu mikilvæg tækifæri til náms, raunfærnimat og hvatning geta verið fyrir fullorðið fólk sem vill stíga ný skref. Hún lýsir því sjálf best þegar hún lítur til baka á vegferðina:
„Já, það er svona sem eitt lítið námskeið sem ég skráði mig á breytti öllu.“
Við hjá Fræðsluneti Suðurlands óskum Jónínu innilega til hamingju með verðskuldaða viðurkenningu. Við erum stolt af því að hafa fengið að fylgja henni hluta leiðarinnar og vonum að saga hennar verði öðrum hvatning til að taka fyrsta skrefið, sama á hvaða aldri það er.