INNA    HAFA SAMBAND     NÁMSVER

Search
Close this search box.
Athugið að Fræðslunetið er lokað vegna sumarleyfa 1. júlí – 6. ágúst.

Fræðslunetið sótti um tvo ferðastyrki í flokknum “Námi og þjálfun” í Erasmus+ menntaáætlun Evrópusambandsins og er ánægjulegt að segja frá því að báðar umsóknir voru samþykktar. 

Annars vegar sótti Fræðslunetið um styrk til að þróa framhaldsnám fyrir hestamenn í tamningum, járningum og hófhirðu. Styrkurinn er til eins árs og er fyrir 5 ferðum til Norðurlandanna þar sem markmiðið er að kynna sér sambærilegt nám og að mynda tengslanet sem nýst getur við frekari þróun námsins. 

Hins vegar var sótt um styrk til að efla færni starfsfólks og leiðbeinenda Fræðslunetsins í vendikennslu  en verkefnið heitir: “Flipped classroom in the livelong learning”. Fengust 4 ferðstyrkir fyrir það verkefni til eins árs og er markmiðið að sækja námskeið þar í hugmyndafræði og aðferðum vendikennslunnar.

“Áætlunin [Erasmus+] hófst þann 1. janúar 2014 og stendur yfir í sjö ár eða til ársins 2020. Á því tímabili renna tæplega 15 milljarðar evra til fjölbreyttra verkefna sem eiga að efla menntun, þjálfun, æskulýðsstarf og íþróttaiðkun almennings í Evrópu.

Markmið Erasmus+ er tvíþætt; styðja við verkefni sem miða að því að auka færni og hæfni einstaklinga til að takast á við störf framtíðarinnar; og tryggja nútímavæðingu mennta- og æskulýðskerfa innan þátttökulandanna 34 sem taka þátt í Erasmus+.” (sótt af vefsíðu erasmunplus.is)

EU flag-Erasmus vect POS