🌍 Fræðslunetið á fjölmenningarhátíð á Selfossi
Á laugardaginn tók Fræðslunetið þátt í fjölmenningarhátíð á Selfossi
þar sem við kynntum fjölbreytt námsframboð okkar og áttum góð samtöl við gesti hátíðarinnar.
Það er gaman að læra um aðra menningarheima og
upplifa þá fjölbreytni sem auðgar samfélagið okkar. 💙
Við vonum að þessi hátíð sé komin til að vera, þökkum kærlega fyrir að fá að taka þátt í þessu skemmtilega og mikilvæga verkefni og vonumst til að mæta aftur á næsta ári.