INNA    HAFA SAMBAND     NÁMSVER

Search
Close this search box.
Athugið að Fræðslunetið er lokað vegna sumarleyfa 1. júlí – 6. ágúst.

Fræðslunetið mun opna starfsstöð á Hvolsvelli í haust.  Fræðslunetið fær aðstöðu í Tónlistarskóla Rangæinga við Vallarbraut, við hliðina á Héraðsbókasafni Rangæinga, en þar verður skrifstofa og aðgangur að kennslustofu við hliðina, þar sem fjarfudarbúnaðurinn er. Þetta er fyrsta starfsstöðin sem opnuð er annarsstaðar en á  Selfossi og má því segja að um ákveðin tímamót sé að ræða í starfsemi Fræðslunetsins. Áætlað er að starfsstöðin verði opin þrjá daga í viku og verður það auglýst nánar síðar. Starfsmaður á Hvolsvelli verður Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir.

Þá er fyrirhugað að halda Grunnmenntaskóla í Rangárvallasýslu ef næg þátttaka fæst. Eru allir þeir sem hafa hug á að fara í nám eða vilja styrkja stöðu sína hvattir til að hafa samband við Fræðslunetið í síma 480 8155 eða með netpósti:  fraedslunet@fraedslunet.is. Þeir sem vilja kynna sér betur Grunnmenntaskólann geta skoðað námsvísi hér. Einnig er hægt að skoða kynningarbækling hér. Grunnmenntaskóli er 300 stunda nám sem samanstendur af sjálfstyrkingu, námstækni, íslensku, stærðfræði, ensku og upplýsingatækni. Lögð er áhersla á að styrkja námsmenn almennt í námi og að undirbúa frekara nám á framhaldsskólastigi.