Hátíðarbragur á útskriftarathöfnum Fræðslunetsins

Útskriftarathafnir Fræðslunetsins fóru fram með hátíðarbrag í lok maí, annars vegar í Gömlu Búð á Höfn og hins vegar á Hótel Selfossi. Þar var fagnað glæsilegum áfanga nemenda sem luku námi af fjölbreyttum námsbrautum Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.

Að þessu sinni luku nemendur námi í Menntastoðum, Menntagrunni, Félagsliðagátt, Leikskólaliða- og stuðningsfulltrúabrú og Stökkpalli. Útskriftardagarnir voru ánægjuleg stund fyrir nemendur, aðstandendur og starfsfólk Fræðslunetsins, þar sem árangri, elju og persónulegum áföngum var fagnað.

Við athöfnina á Selfossi flutti Eyjólfur Sturlaugsson, framkvæmdastjóri Fræðslunetsins, ávarp og minnti á mikilvægi þess að láta drauma sína rætast — og að nýir draumar verða oft til þegar einum áfanga er náð.

Einnig flutti Ásta Björg Jósepsdóttir ávarp fyrir hönd nemenda og sagði frá því hvernig námið hjá Fræðslunetinu hefði aukið trú hennar á eigin getu. Hún nefndi sérstaklega að skipulag námsins, þar sem einn áfangi er kenndur í einu, hefði hentað sér mjög vel.

Við óskum öllum útskriftarnemum innilega til hamingju með árangurinn og hlökkum til að fylgjast með næstu skrefum þeirra.

Lesa fréttina á Sunnlenska.is:
https://www.sunnlenska.is/frettir/hatidarbragur-a-utskriftarathofnum-fraedslunetsins/