Search
Close this search box.
Ingibjörg Lilja Ómarsdóttir og Ástrós Rún Sigurðardóttir styrkþegar vísinda- og rannsóknasjóðs Suðurlands 2018

Þann 10. Janúar síðastliðinn fór fram árlegur hátíðarfundur Vísinda- og rannsóknarsjóðs Suðurlands. Fundurinn fór að venju fram í Fjölbrautaskóla Suðurlands að viðstöddum forseta Íslands og um 150 gestum sem komu víðsvegar að af Suðurlandi.
Hefð hefur verið fyrir því á hátíðarfundum að fá kynningu á einhverju verkefni sem sjóðurinn hefur styrkt. Þetta árið voru það Aníta Þorgerður Tryggvadóttir og Ingibjörg Steinunn Sæmundsdóttir styrkhafar 2016 sem kynntu sitt áhugaverða verkefni; Fjölþætt heilsurækt í sveitarfélögum.
Sveinn Aðalsteinsson stjórnarformaður sjóðsins fór yfir niðurstöðu dómnefndar sjóðsins vegna styrkþega fyrir árið 2018 og gerði grein fyrir niðurstöðum. Sjóðurinn ákvað að þessu sinni að styrkja tvö verkefni um kr. 750.000 – eða samtals kr. 1.500.000 -. Styrkhafar sjóðsins fyrir árið 2018 eru:
• Ingibjörg Lilja Ómarsdóttir vegna doktorsverkefnisins; Eyjafjallajökulsgos 2010 – áhrif á íbúa og enduruppbygging samfélaga. Í verkefninu er sjónum beint að seiglu samfélaga (community resilience) vegna náttúruhamfara. Kannað er hvernig íbúar, starfsfólk og viðbragðsaðilar í sveitarfélögunum Rangárþingi eystra og Mýrdalshreppi álitu sig í stakk búinir til að takast á við eldgos áður en Eyjafjallajökulsgosið árið 2010 hófst, hvaða áhrif gosið hafði og hvernig þessum samfélögum gekk að takast á við afleiðingar gossins.
• Ástrós Rún Sigurðardóttir vegna mastersverkefnisins; Þáttur félags- og menningarauðs í námi og menntun barna með fjölmenningarlegan bakgrunn. Í verkefninu verður leitast við að svara því hvaða áhrif menningar- og félagsauður foreldra og forráðamanna hefur á nám innflytjendabarna í Sveitarfélaginu Árborg og jafnframt að rannsaka hvernig grunnskólakennarar og annað fagfólk í skólasamfélaginu stuðla að fjölmenningarlegri menntun nemenda sinna.
Það var forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson sem afhenti styrkina og ávarpaði fundinn.

 

Vísinda- og rannsóknarsjóður Suðurlands hefur síðastliðin 14 ár styrkt fjölmörg rannsóknarverkefni sem öll eiga það sameiginlegt að snúa að einhverju leyti að Suðurlandi. Þannig hefur sjóðurinn með stuðningi samfélagsins átt þátt í að búa til nýja og hagnýta þekkingu fyrir Suðurland.
Að Vísinda- og rannsóknarsjóði Suðurlands standa sameiginlega Fræðslunetið símenntun á Suðurlandi og Háskólafélag Suðurlands. Fjármögnun sjóðsins fer þannig fram að félög, stofnanir og fyrirtæki á Suðurlandi styrkja sjóðinn með árlegu framlagi, sem styktaraðilar ákveða sjálfir. Styrktaraðilum fjölgar stöðugt og er það mikið ánægjuefni. Núvernadi styrktaraðilar sjóðsins eru eftirfarandi:
Mýrdalshreppur
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Landgræðsla ríkisins Gunnarsholti
Félag iðn- og tæknigreina FIT
Verslunarmannafélag Reykjavíkur
Félag opinberra starfsmanna Suðurlandi
Dvalarheimilið Ás
Flóahreppur
Rangárþing eystra
Sveitarfélagið Árborg
Menntaskólinn Laugarvatni
Jarðskjálftamiðstöð Háskóla Íslands
Sveitarfélagið Bláskógabyggð
Kötlusetur Samtök sunnlenskra sveitarfélaga
Fjölbrautaskóli Suðurlands
Samband sunnlenskra kvenna
Háskólafélag Suðurlands
Sveitarfélagið Ölfus
Sveitarfélagið Hornafjörður
Skeiða- og Gnúpverjahreppur
Suðurlandsskógar
Hveragerðisbær
Landsbankinn
Báran stéttarfélag
Skaftárhreppur
Kirkjubjæarstofa

Fræðslunetið símenntun á Suðurlandi er vörsluaðili sjóðsins og þeir sem áhuga hafa á því að gerast styrktaraðli geta haft samband í síma 560 2030 eða á netfangið: fraedslunet@fraedslunet.is