Hátíðarfundur Fræðslunets Suðurlands verður haldinn í hátíðarsal FSu þriðjudaginn 24. janúar kl. 17. Á fundinum mun forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson afhenda styrk Vísindasjóðs Suðurlands.
Fundarstjóri: Gylfi Þorkelsson, formaður stjórnar Fræðslunetsins.
Dagskrá:
- Tónlist: Kór Fjölbrautaskóla Suðurlands.
- Gylfi Þorkelsson setur fund.
- Steingerður Hreinsdóttir, formaður stjórnar Háskólafélags Suðurlands: Ávarp.
- Sveinn Aðalsteinsson, formaður dómnefndar: Störf nefndarinnar og niðurstöður.
- Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhendir styrkinn og ávarpar samkomuna.
- Sveinn Aðalsteinsson: Ávarp til styrkþega.
- Eydís Þ. Indriðadóttir, formaður menntamálanefndar SASS: Menntaverðlaun Suðurlands.
- Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhendir menntaverðlaun Suðurlands.
- Sigurður Unnar Sigurðsson styrkhafi 2010: Rannsóknir í jarðskjálftaverkfræði.
- Fundarlok: Gylfi Þorkelsson