Íslenska 4

Íslenska 4 | A2.2

Please scroll down the page to see all available courses at level two.  Select a language on the top menu if you prefer.

Verkefnastjóri íslenskunámskeiða er Róslín Alma Valdemarsdóttir, roslin@fraedslunet.is, sími 560 2028

Áfanginn miðast við þarfir þeirra sem hafa nokkuð góða undirstöðu í tungumálinu. Fjallað er um þætti sem tengjast daglegu lífi og þörfum fjölskyldu. Áhersla er lögð á að efla orðskilning nemenda tengdan ýmsum störfum, samskiptum á vinnustað, atvinnuumsóknum, atvinnuviðtölum og launaseðlum. Áfram er lögð áhersla á íslenskt samfélag og fjölmiðla með það fyrir augum að auka færni nemenda í tungumálinu og efla sjálfstraust þeirra og samfélagslega vitund. Fjallað um mannleg samskipti, virðingu og umgengni. Íslensk landafræði lítillega kynnt og nemendur segja frá reynslu sinni af ferðalögum um Ísland og önnur lönd. Fjölbreyttum kennsluaðferðum í tungumálakennslu beitt. Þjálfun í ritfærni eykst. Leitast er við að gera verkefnin þannig úr garði að þau reyni á hæfni nemandans við raunverulegar aðstæður og þjálfi nemandann í að geta haldið uppi samræðum og gert sig sem best skiljanlega á íslensku.
Efnisatriði:
Dæmi: sjónvarp, dagblöð, Internetið, útvarp, myndir, skóladagar, starfsdagar, viðeigandi klæðnaður, veikindi, viðtalstími, hegðun, heimanám, próf, skólabækur og áhöld, foreldrafundir, skólaskemmtanir, öryggisatriði, skattur, skattaskýrsla, orlof, kaup, atvinnuviðtal, ferilskrá, launaseðill, stéttarfélag, persónuafsláttur, ferðalög, landafræði.

Áfanginn samsvarar seinni hluta A2 (A2.2) samkvæmt viðmiðun Evrópska tungumálarammans (Common European Framework of Reference for Languages).

Farið er fram á að nemendur stundi heimanám á meðan á námskeiði stendur.

  • Verð/price: 56.000 
  • Pay by VISA Card, Credit or Debit or by Netgiro. It will not be charged until few days before the course begins. Please note that in order for an application to be valid, credit card information must be entered and the check-in terms must be accepted at the bottom of the application page.
  • Zaplac karta Visa, karta debetowa lub kredytowa lub online zyro (Netgíró). Oplata zostanie naliczona dopiero na kilka dni przed rozpoczeciem kursu.
  • Greitt er með Vísa, debit eða kredit. Athugið að fræðslusjóðir stéttarfélaga styrkja þátttakendur. 
Reglur um innheimtu námskeiðsgjalda
Course Fee Policy
Regulamin opłat za kurs

Námskeiðið er styrkt af: 

Kennslustaður: Nýheimar

8. október – 12. desember
Þriðjudagar og fimmtudagar kl. 17:00-19:00
Kennari: Hlíf  Gylfadóttir

Verð: 56.000.-

Kennslustaður: Fjölheimar

30. október – 18. desember
Mánudagar og miðvikudagar kl. 17:00-19:30
Kennari: Björgvin G. Sigurðsson

Verð: 56.000.-