Íslenska 5 | C1.1

📍 Staðsetning 👨‍🏫 Kennari 📅 Dagsetning ⏰ Tími 📆 Dagar 💰 Verð 🔗 Skráning
ONLINE Davíð Samúelsson 18. maí – 1. júl 14:30 - 16:00 Mánudagar, þriðjudagar og miðvikudagar 58,000 kr. Skráning
Kristín g

Verkefnastjóri íslenskunámskeiða er Kristín G Gestsdóttir. 
Kristing@fraedslunet.is
S. 560 2038

Tímabókun hjá verkefnastjóra

Áfanginn miðast við þarfir þeirra sem hafa góða undirstöðu í tungumálinu.
Hér er markmiðið að nemendur geti notað íslensku á sveigjanlegan, árangursríkan og nákvæman hátt í flóknum aðstæðum. Nemendur eiga að geta skilið flóknar textagerðir, bæði bókmenntalegar og fræðilegar, og greint undirliggjandi merkingu í texta. Þeir þurfa að skilja flókin rök og hugmyndir í umræðum, fyrirlestrum og fjölmiðlum.

Í tjáningu er lögð áhersla á að nemendur geti tjáð sig sjálfstætt, skýrt og skipulega um flókin málefni, notað breiðan orðaforða og nákvæma málfræði til að koma fram blæbrigðum í merkingu. Tekið virkan þátt í fræðilegum eða faglegum umræðum með rökstuðningi og svörum við mótrökum. Í ritun er markmiðið að nemendur geti samið skýra vel uppbyggða og ítarlega texta um flókin efni. Ritgerðir, greinar eða skýrslur og geti valið viðeigandi stíl hvort sem um er að ræða formlegt, óformlegt eða fræðilegt efni.

Að lokum er samskiptafærni lykilatriði. Nemendur þurfa að geta aðlagað málnotkun að mismunandi aðstæðum, til dæmis faglegum fundum, óformlegum samræðum eða opinberum kynningum, og notað tungumálið á árangursríkan hátt til að ná samskiptamarkmiðum.

Áfanginn samsvarar seinni hluta C1.1 samkvæmt viðmiðum Evrópska tungumálarammans (Common European Framework of Reference for Languages).

Farið er fram á að nemendur stundi heimanám á meðan á námskeiði stendur.

  • Verð/price: 58.000 
  • Pay by VISA Card, Credit or Debit or by Netgiro. It will not be charged until few days before the course begins. Please note that in order for an application to be valid, credit card information must be entered and the check-in terms must be accepted at the bottom of the application page.
  • Zaplac karta Visa, karta debetowa lub kredytowa lub online zyro (Netgíró). Oplata zostanie naliczona dopiero na kilka dni przed rozpoczeciem kursu.
  • Greitt er með Vísa, debit eða kredit. Athugið að fræðslusjóðir stéttarfélaga styrkja þátttakendur. 
Reglur um innheimtu námskeiðsgjalda
Course Fee Policy
Regulamin opłat za kurs

Námskeiðið er styrkt af: