INNA    HAFA SAMBAND     NÁMSVER

Search
Close this search box.
Athugið að Fræðslunetið er lokað vegna sumarleyfa 1. júlí – 6. ágúst.

Verður í boði í fjarfundi á Flúðir, Hvolsvöll, Vík og Klaustur

Á námskeiðinu er farið yfir Evrópumálin á aðgengilegan og áhugaverðan hátt út frá sjónarhóli Íslands. Það hentar öllum sem hafa áhuga á Evrópumálum og engrar sérþekkingar er krafist. 

Á námskeiðinu er farið yfir sögu ESB, stofnanir þess og uppbyggingu, og hvernig ákvarðanir eru teknar innan sambandsins. Þá verður fjallað um umsókn Íslands og aðildarviðræðurnar sem nú standa yfir og hvaða áhrif möguleg aðild Íslands að ESB geti haft fyrir Ísland. Loks er skoðað hvernig ESB hefur brugðist við fjármálakreppunni og hvaða áskoranir eru framundan fyrir framtíð Evrópusamvinnu.
Að námskeiði loknu ættu þátttakendur að vera vel kunnugir grundvallarhugtökum í umræðunni um Evrópumál og vera betur í stakk búnir til að taka þátt í umræðunni á gagnrýninn og upplýstan hátt.

Kennari námskeiðsins er Auðbjörg Ólafsdóttir, stjórnmála- og hagfræðingur

Skrá mig á þennan fyrirlestur