INNA    HAFA SAMBAND     NÁMSVER

Search
Close this search box.
Athugið að Fræðslunetið er lokað vegna sumarleyfa 1. júlí – 6. ágúst.

Hefur þú starfað við matartækni í 3 ár eða lengur og vilt ljúka námi í faginu? Þá gæti raunfærnimat verið fyrir þig! Raunfærnimat miðar að því að meta færni og þekkingu sem viðkomandi býr yfir inn í skólakerfið. Að loknu raunfærnimati fara þátttakendur í skóla og ljúka því námi sem eftir stendur til að útskrifast. Inntökuskilyrði í raunfærnimat eru 3 ára starfsaldur í greininni og 25 ára lífaldur.

Kynningarfundur verður haldinn mánudaginn 6. maí  kl. 18.00 í Fjölheimum við Bankaveg, Selfossi.

Áhugasömum er bent á að hafa samband við Sólveigu Kristinsdóttur hjá Fræðsluneti Suðurlands í síma 560 2030 eða með því að senda fyrirspurn á solveig@fraedslunet.is

Skoða auglýsingu um raunfærnimatið.