Search
Close this search box.

næsta skref 2 2

Nýr upplýsingavefur sem ber heitið Næsta skref hefur verið opnaður. Markmið vefsins er að veita einstaklingum upplýsingar og aðgengi að ráðgjöf um störf á íslenskum vinnumarkaði, námsframboð þeim tengdum og raunfærnimatsleiðir. Skoða vefinn.

Það eru Fræðslumiðstöð atvinnulífsins (FA) og Sérfræðisetur í ævilangri náms- og starfsráðgjöf (SÆNS) sem hafa unnið sameiginlega að þróun vefsins í samráði og samstarfi við ýmsa hagsmunaaðila, s.s. starfsgreinaráð, fagfélög og fræðsluaðila.

 

Vefurinn er hluti af IPA styrktu verkefni sem FA stýrði á árunum 2012-2014 sem bar heitið: Þróun raunfærnimats til að efla starfshæfni fullorðinna með litla formlega menntun. Að verkefninu komu m.a. ráðgefandi aðilar frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, Fjármálaráðuneytið, Velferðarráðuneytið, Alþýðusamband Íslands, Samtök atvinnulífsins, BSRB – Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, Samband íslenskra sveitarfélaga, KVASIR – félag símenntunarmiðstöðva, Félag íslenskra framhaldsskóla og Hagstofu Íslands.

Þeir sem vilja kynna sér störf (starfalýsingar) og framboð á námi og raunfærnimati eru hvattir til að kynna sér vefinn.