INNA    HAFA SAMBAND     NÁMSVER

Search
Close this search box.
Athugið að Fræðslunetið er lokað vegna sumarleyfa 1. júlí – 6. ágúst.

Vísinda- og rannsóknarsjóður Suðurlands auglýsir eftir umsóknum um náms- og rannsóknarstyrk fyrir árið 2014. Styrkurinn nemur 1.200.000 kr.
Styrkurinn er ætlaður námsfólki sem vinnur að rannsóknarverkefni til lokaprófs á háskólastigi. Verkefnið skal tengjast Suðurlandi og þjóna ótvíræðum atvinnu- og/eða fræðilegum tilgangi fyrir Suðurland eða hluta Suðurlands.
Umsóknarfrestur er til 3. nóvember næstkomandi. Umsóknum má skila hvort sem er til Fræðslunetsins – símenntunar á Suðurlandi (asmundur@fraedslunet.is) eða Háskólafélags Suðurlands (sigurdur@hfsu.is).  Þeir Ásmundur og Sigurður veita jafnframt nánari upplýsingar í þessu sambandi. Síminn er 560 2030.

Sjá reglur um sjóðinn.