Search
Close this search box.

Náms- og starfsráðgjöf Fræðslunetsins

Hjá Fræðslunetinu starfa fjórir náms- og starfsráðgjafar. Netfang þeirra er: radgjafar@fraedslunet.is. Boðið er uppá ráðgjöf fyrir einstaklinga, hópráðgjöf í fyrirtækjum og einnig getur Fræðslunetið boðið fræðslugreiningar í fyrirtækjum, verkefni sem kallað er ,,Ráðgjafi að láni” og eru slík verkefni styrkt af starfsmenntasjóðum. 

Náms- og starfsráðgjafar Fræðslunetsins

Ráðgjöf á þínum forsendum

Vantar þig leiðsögn og aðstoð tengda námi og störfum?
Markmið náms- og starfsráðgjafar er að auðvelda einstaklingum að átta sig á eigin óskum og vilja og efla færni þeirra til að taka farsælar ákvarðanir um nám og störf.

Með náms- og starfsráðgjöf færðu meðal annars:

  • Upplýsingar um nám og störf.
  • Aðstoð við að velja þér nám eða starf.
  • Aðstoð við að kanna áhugasvið þitt, færni og persónulega styrkleika með tilliti til náms  og starfa.
  • Aðstoð við mat á möguleikum til náms og starfa.
  • Aðstoð til að takast á við hindranir í námi, s.s. prófkvíða og lesblindu.
  • Aðstoð við að setja þér markmið og gera áætlun um nám- eða starfsþróun.
  • Leiðsögn um árangursrík vinnubrögð í námi t.d. glósugerð og prófundirbúning.
  • Áhugasviðsgreiningu sem getur auðveldað val á námi og starfi.
  • Aðstoð og upplýsingar um raunfærnimat.
  • Aðstoð við gerð ferilskrár (CV) og atvinnuumsókna.
  • Ráðgjöf og aðstoð varðandi undirbúning starfsloka.

Boðið er upp á einstaklingsráðgjöf, hópráðgjöf og ráðgjöf á vinnustöðum. Ráðgjöfin er frí fyrir þá sem ekki hafa lokið framhaldsskóla.

Náms- og starfsráðgjafar mæta þér á þínum forsendum og þú getur  bókað viðtal við náms- og starfsráðgjafa hjá Fræðslunetinu.

Ráðgjöf í fyrirtækjum

Náms- og starfsráðgjafar Fræðslunetsins fara í heimsóknir í fyrirtæki og kynna nám og ýmis úrræði sem við getum boðið uppá, má þar nefna raunfærnimat, raunfærnimat í atvinnulífinu, ráðgjöf, starfstengt nám, áhugasviðsgreiningar o.fl. Hægt er að óska eftir því að fá ráðgjafa í heimsókn en einnig getur ráðgjafi haft samband að fyrra bragði, t.d. þegar tiltekið nám er að fara af stað. Þá getur verið gott fyrir starfsfólk að fá kynningu á því. 

Hægt er að panta ráðgjafa í síma 560 2030, eða á netfanginu radgjafar@fraedslunet.is

Næstu skref - áhugasviðskönnun?

Bendill IV er hannaður fyrir fólk á vinnumarkaði og er leiðarvísir í átt til ákvarðanatöku.

Mikilvægt er að taka mið af eigin áhugasviðum þegar ákvarðanir um nám og/eða störf eru teknar. Áhugasviðskannanir eru notaðar til að aðstoða einstaklinga við að taka ákvarðanir varðandi náms- og starfsval og starfsþróun. Könnunin er tekin undir handleiðslu náms- og starfsráðgjafa sem jafnframt túlkar niðurstöður með viðkomandi á faglegan hátt.

Náms- og starfsráðgjafar Fræðslunetsins hafa sótt réttindanámskeið í notkun Bendils.

Verð: xxxxxx krónur.

Nánari upplýsingar:
radgjafar@fraedslunet.is

Sími: 5602030