nám fyrir fatlað fólk (1)

Námskeið fyrir fatlað fólk

Vinsamlegast skrunið niður síðuna til að sjá öll námskeið sem eru  í boði á haustönn 2025.

Það þarf ekki alltaf að vera flókið að baka brauð en því kynnumst við á þessu námskeiði. Bökuð eru holl og góð brauð sem þátttakendur taka með sér heim eftir að hafa smakkað afraksturinn í tímanum. Kennt er einu sinni í viku í 6 skipti, samtals 9 klukkustundir.

Verð: 16.600 kr.

Námskeiðið er ætlað fyrir byrjendur. Notuð er fjölbreytt nálgun, rafrænt nám og nám í mismunandi aðstæðum. Kennt er einu sinni í viku í 10 skipti, samtals 15 klukkustundir.

Verð: 18.400 kr.

Hvernig getum við notað gervigreind í daglegu lífi.

Við búum til tækifæri til að kynnast heimi gervigreindar: hvað hún er, hvernig hún er notuð í daglegu lífi og hvernig hægt er að nýta hana á skapandi og öruggari hátt. Kennt er einu sinni í viku í 10 skipti, samtals 10 klst.

Verð: 15.000 kr.

Á námskeiðinu verður farið í mataræði og hvernig hægt er að hugsa jákvætt um matinn sem við borðum. Skoðað er af hverju sumt er hollara en annað og af hverju við þurfum að hugsa um hvað við borðum og hversu mikið við borðum. Einnig verður rætt um hreyfingu, hvernig hreyfing er góð og hvað þarf að varast. Heimsóttar verða líkamsræktastöðvar þar sem hægt er að stunda æfingar en einnig verða kynntar léttar æfingar í sal í húsi Fjölheima. Kennt er einu sinni í viku í 10 skipti, samtals 15 klukkustundir.

Verð: 20.300 kr.

Á námskeiðinu verður farið í markmiðasetningu þar sem við lærum að setja okkur skýr markmið. Rætt verður hvað þarf að gera til að ná markmiðunum og hvað getur haft áhrif á að við náum markmiðunum. Skoðað er hvernig hreyfing hentar hverjum og einum og af hverju mikilvægt er að hita upp og teygja. Farið verður nánar í fæðuhringinn og orkuefnin skoðuð. Kennt er einu sinni í viku í 10 skipti, samtals 10 klukkustundir.

Verð: 20.300 kr.

Á námskeiðinu verður mataræði skoðað og mikilvægi margra ólíkra máltíða yfir daginn. Kennt verður að gera hollan og auðveldan mat og millimál ásamt því að tala um hversu mikið við eigum að borða í hvert sinn. Kennt er einu sinni í viku í 8 skipti, samtals 12 klukkustundir.

Verð: 22.000 kr.

Kennt er að útbúa hollan mat, gómsætan og fjölbreyttan mat. Námskeiðið hentar þeim vel sem búa einir og elda sjálfir og einnig þeim sem búa með öðrum og elda reglulega heima. Áhersla er lögð á hagkvæm innkaup, hollan mat og sjálfstæði þátttakenda. Kennt er einu sinni í viku í 10 skipti, samtals 15 klukkustundir.

Verð: 28.700 kr.

Á námskeiðinu verða kenndar léttar upphitanir og teyjuæfingar. Skoðað verður hver er munurinn á mismunandi æfingum og leiðum til að komast í betra líkamlegt form. Skoðað hvernig hægt er að hreyfa sig á skemmtilegan hátt án líkamsræktarstöðva en einnig er tækjasalur og hóptímar heimsóttir. Markmiðið er að kynnast nýjum og spennandi leiðum til að auka hreyfinguna og bæta heilsuna. Kennt er einu sinni í viku í 8 skipti, samtals 12 klukkustundir.

Verð: 14.700 kr.

Markmið námskeiðsins er að fjalla um það hvað felst í fordómum og einelti. Rætt verður hvernig þetta birtist í samfélaginu og hvernig hægt er að koma í veg fyrir þessa hluti. Kennt er einu sinni í viku í 8 skipti, samtals 12 klukkustundir.

Verð: 14.700 kr.

Á námskeiðinu verður farið yfir helstu flokka fugla og fjallað um einkenni þeirra eins og til dæmis muninn á vaðfugi, mófugli og spörfugli. Fjallað verður um helstu fugla sem lifa á Íslandi og meðal annars skoðað hvernig þeir og ungar þeirra líta út, hvar þeir verpa og hvað þeir borða.  Rætt verður um fuglaskoðun og bent á góða hluti til að hafa í huga við fuglaskoðun. Kennt er einu sinni í viku í 10 skipti, samtals 15 klukkustundir.

Verð: 18.400 kr.

Námskeiðið er fyrir fólk sem langar að ná betri tökum á lestri og ritun. Notuð er fjölbreytt nálgun, rafrænt nám, nám í mismunandi aðstæðum og fleira. Kennt er einu sinni í viku í 10 skipti, samtals 15 klukkustundir.

Verð: 18.400 kr.

Leirnámskeiðið býður upp á skemmtilegar og skapandi stundir þar sem hver og einn fær tækifæri til að kanna og nýta eigin sköpunarkraft á sínum eigin hraða. Áhersla verður lögð á að að móta leirinn að eigin hugmyndum og um leið að njóta þess að handleika leirinn. Á námskeiðinu verður unnið með grunnatriði leirlistar, þumal aðferð, slöngu aðferð og plötu aðferð. Á námskeiðinu notum við steinleir og aðeins “food safe” glerunga. Kennt er einu sinni í viku í 10 skipti, samtals 15 klukkustundir.

Verð: 27.400 kr.

Námskeiðið er fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna sér réttindi fatlaðs fólks og þar á meðal að kynna sér í hverju það felst að vera talsmaður fatlaðs fólks. Kynntur er Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og félög sem starfa í tengslum við fatlað fólk. Kennt er einu sinni í viku í 10 skipti, samtals 15 klukkustundir.

Verð: 18.400 kr.

Á námskeiðinu verður unnið með myndir í spjaldtölvum og að klippa saman myndefni. Kenndar verða undirstöður myndvinnslu þannig að myndir eru lagaðar til í forriti og svo myndir settar saman í myndband. Unnið verður í Imovie og myndvinnsluforriti. Kennt er einu sinni í viku í 8 skipti, samtals 12 klukkustundir.

Verð: 14.700 kr.

Markmiðið með námskeiðinu er að efla þátttakendur í samskiptum og styrkja sjálfsmynd þeirra. Námsefnið er sett fram á myndrænan hátt en einnig er notast við Tákn með tali. Kennt er einu sinni í viku í 10 skipti, samtals 15 klukkustundir.

Verð: 18.400 kr.

Á námskeiðinu vinna þátttakendur að því að búa til myndir. Áhersla er lögð á að ýta undir sköpunargleði og virkja ímyndunarafl þátttakenda. Kynntar eru mismunandi aðferðir og mismunandi efni til þess að vinna með. Kennt er einu sinni í viku í 8 skipti, samtals 12 klukkustundir. 

Verð: 20.500 kr.

Notaðir eru rofar til að stjórna tölvu svo sem í tölvuleikjum, að velja tónlist og fleira. Unnið er markvisst að því að finna leiðir til að þátttakendur geti stjórnað einhverju í umhverfinu og þar með verið virkir. Áhersla er lögð á að hver og einn þátttakandi velji sér viðfangsefni tengt sínu áhugasviði. Kennt er einu sinni í viku í 10 skipti, samtals 15 klukkustundir. 

Verð: 18.400 kr.

Á námskeiðinu verður hlustað á skáldsögu í formi rafbókar og þurfa þátttakendur að hlusta heima á milli tímanna. Fjallað verður um persónur sögunnar, hvar hún gerist og tímann sem hún gerist á. Rætt er um áhrifin sem persónur og samfélagið hefur á atburði bókarinnar og hvað gerist í raun og veru.  Kennt er einu sinni í viku í 10 skipti, samtals 15 klukkustundir.

Verð: 20.500 kr.

Þetta námskeið er ætlað fólki sem hefur þörf fyrir stuðning til virkni, tjáskipta og félagslegra tengsla. Markmiðin eru meðal annars að auka virkni og áhuga, að gera eitthvað skemmtilegt með öðrum og að þátttakendur nái slökun og vellíðan. Unnið er að miklu leyti með tónlist, umhverfisstjórnun, rofa og tölvu. Kennt er einu sinni í viku í 10 skipti, samtals 10 klukkustundir.

Verð: 18.400 kr.

Þetta námskeið er ætlað fólki sem er að læra hjá einhverjum öðrum en Fræðslunetinu en hefur þörf á meiri aðstoð við námið sitt. Þeir sem þurfa stuðning í til dæmis ökuskóla eða bóklegu námi geta komið og fengið aðstoð.  Kennt er einu sinni í viku í 6 skipti, samtals 9 klukkustundir.

Verð: 11.000 kr.

Stærðfræðiþjálfun þar sem áhersla er lögð á notkun í daglegu lífi þátttakenda. Notuð er fjölbreytt nálgun, rafrænt nám og nám í mismunandi aðstæðum. Kennt er einu sinni í viku í 10 skipti, samtals 15 klukkustundir.

Verð: 18.400 kr.

Á námskeiðinu verða kennd grunn atriði íslenska táknmálsins.  Kennt er einu sinni í viku í 10 skipti, samtals 15 klukkustundir.

Verð: 18.400 kr.

Nemendur þjálfast í að hanna og skapa textílverk. Notast verður við t.d. útsaum og prjón.  Kennt er einu sinni í viku í 10 skipti, samtals 15 klukkustundir.

Verð: 27.500 kr.

Nemendur þjálfast í að hanna og skapa textílverk. Notast verður til dæmis við saumavélar og mögulega gert tauþrykk. Kennt er einu sinni í viku í 10 skipti, samtals 15 klukkustundir.

Verð: 27.500 kr.

Hannað er eigið verk þar sem unnið er með ýmis textíl. Hér er um frjálsa aðferð að ræða þar sem unnið er með ólík efni úr ýmsum áttum. Skreytt er með til dæmis smáhlutum, garni, efnisræmum, blúndum og borðum. Kennt er einu sinni í viku í 10 skipti, samtals 15 klst.

Verð: 27.500 kr.

Leiðbeinandi leiðir slökun. Hljóðfæri eins og gong en notað til að skapa tónheilun sem veitir enn dýpri slökun. Þátttakendur liggja á dýnu, á kodda og með teppi. Líkami fer í hvíld og hugur í kyrrð.

Yoga Nidra djúpslökun getur skapað jafnvægi í líkamanum, bætt svefn, losað um streitu og komið ró á huga. Kennt er einu sinni í viku. Námskeiðið er 10 skipti, samtals 10 klukkustundir.

Verð: 15.500 kr.

Á námskeiðinu verða kenndar grunnstöður í yoga og æfingar sem styrkja líkamann. Farið verður í einfaldar öndunaræfingar og slökun í lok tíma.  Kennt er einu sinni í viku í 10 skipti og er námskeiðið klukkutími í senn, samtals 10 klukkustundir.

Verð: 15.500 kr.