INNA    HAFA SAMBAND     NÁMSVER

Search
Close this search box.
Athugið að Fræðslunetið er lokað vegna sumarleyfa 1. júlí – 6. ágúst.
Frá fundinum í Vík

Í síðustu viku héldu Fræðslunetið og Háskólafélag Suðurlands tvo opna fundi í Vík í Mýrdal og á Kirkjubæjarklaustri. Fundirnir voru haldnir í námsverum félaganna í Kötlusetri í Vík og Kirkjubæjarstofu á Klaustri. 

 

Á fundunum var farið yfir starfsemi félaganna á svæðinu og Árni Rúnar Þorvaldsson, verkefnastjóri félaganna á svæðinu fór yfir sitt starf frá því var komið á fót fyrir ári síðan. Ásmundur Sverrir Pálsson, framkvæmdastjóri Fræðslunetsins og Sigurður Sigursveinsson, framkvæmdastjóri Háskólafélags Suðurlands kynntu starfsemi félaga sinna sem og nýjar hugmyndir um uppbyggingu þekkingarstarfs á Suðurlandi.
Fundirnir heppnuðust vel og fór fram góð umræða um starfsemi félaganna á þessu svæði. Einnig var rætt um hvernig væri hægt að efla þetta starf enn frekar og var almennt vel tekið í þær hugmyndir sem kynntar voru um uppbyggingu þekkingarstarfs á Suðurlandi. Þær tillögur eru nú til umfjöllunar hjá heimamönnum, m.a. í stjórnum Kötluseturs og Kirkjubæjarstofu og í sveitarstjórnum sveitarfélaganna.