Raunfærnimat í almennri starfshæfni 

Fyrir hverja er raunfærnimatið? 

Raunfærnimat í almennri starfshæfni er ætlað einstaklingum sem hafa reynslu af störfum á vinnumarkaði en hafa ekki lokið formlegu námi á framhaldsskólastigi. 

Raunfærnimatið hentar fólki sem vilja styrkja stöðu sína á vinnumarkaði, er á krossgötum, er leitandi eða er að velta fyrir sér nýju starfi. Einnig fólki í starfsendurhæfingu sem t.d. hefur orðið fyrir kulnun.  

Hvað get ég fengið mikið metið? 

Í raunfærnimatinu er metin sú þekking og færni sem þú hefur aflað þér í starfi, námi eða lífsreynslu. 
 

Hverju breytir það fyrir mig ef ég klára raunfærnimatið? 

Ferlið getur reynst mjög eflandi þar sem fólk áttar sig á eigin styrkleikum, sækir jafnvel um störf á vinnumarkaði sem það treysti sér ekki til áður og opnar á fleiri möguleika til frekara náms eða starfa.