Raunfærnimat í matartækni er ætlað einstaklingum sem hafa reynslu af matreiðslu eða vinnu við matvæli, til dæmis í mötuneytum, eldhúsum stofnana eða í matvælaframleiðslu.
Hvað get ég fengið mikið metið?
Í raunfærnimati er metin sú þekking og færni sem þú hefur aflað þér í starfi. Út frá niðurstöðum matsins getur þú fengið hluta náms í matartækni metinn.
Hvar get ég klárað námið?
Eftir raunfærnimat getur þú lokið námi í matartækni í framhaldsskólum sem bjóða upp á námið.
Hverju breytir það fyrir mig ef ég klára námið?
Með námi í matartækni styrkir þú faglega hæfni þína í matreiðslu og matvælaframleiðslu og eykur möguleika á störfum á því sviði.