Raunfærnimat fyrir sjúkraliða

Fræðslunetið er aftur að bjóða upp á raunfærnimat fyrir sjúkraliða. Raunfærnimat er frábær leið fyrir fólk með reynslu í umönnun til að fá færni og þekkingu metna, og stíga næsta skref í átt að því að verða sjúkraliði.

Fyrir hverja er raunfærnimat?

Þetta úrræði hentar þér ef þú:

  • hefur hug á að verða sjúkraliði

  • ert með að minnsta kosti þriggja ára starfsreynslu í umönnun

  • ert 23 ára eða eldri

  • vilt fá færni þína og þekkingu metna og staðfesta

Skráning stendur yfir

Ef þú hefur áhuga á að taka þátt eða vilt fá nánari upplýsingar, hafðu samband við okkur.

Nánari upplýsingar og skráning:
radgjafar@fraedslunet.is
Sími: 560-2030