Spænsku námskeið  

Innhald námskeiðsins: 

Þetta námskeið hentar þeim sem hafa takmarkaða eða enga kunnáttu í spænsku. Áhersla er lögð á munnlega tjáningu og farið er yfir grunnatriði í málfræði og orðaforða með fjölbreyttum og aðgengilegum hætti. 

Mikilvægur orðaforði 

  • Tölur, vikudagar, mánuðir o.fl. 
  • Fjölskylda, matur, ferðalög, veður o.fl. 
  • Litir, fatnaður, heimilisvörur o.fl. 


Grunnatriði málfræðinnar 

  • Stafróf og framburðarreglur 
  • Einföld setningaskipan  
  • Grunnsagnir í nútíð 
  • Greinir, kyn og fleirtala 


Hagnýt samtöl 

  • Að spyrja og svara einföldum spurningum 
  • Að panta mat/drykki og versla 
  • Að spyrja til vegar 
  • Algengar setningar fyrir daglegar aðstæður 
  • Að heilsa og kynna sig 


Ávinningur 

Við lok námskeiðsins munu nemendur hafa sjálfstraust til að taka þátt í einföldum samræðum, skilja grunntexta, nota nauðsynlegar spænskar setningar í raunverulegum aðstæðum og hafa betri skilning á spænskri menningu. 

Verð: 45.000 

Kennt verður í fjarnámi á miðvikudögum kl. 19.00 -21.00 á tímabilinu 03.september – 08.október 2025 ( 6 skipti) 

Kennarinn sem heitir Carlos er ensku- og spænskumælandi, hann bjó á Íslandi um tíma en er búsettur á Spáni í dag.  

Lágmarksaldur er 18 ára.