Ráðgjafarnir eru með aðsetur í Fjölheimum Tryggvagötu 13 á Selfossi. Þær fara einnig reglulega á aðrar starfsstöðvar Fræðslunetsins á Hvolsvelli, Vík og Höfn og víðar sé eftir því óskað. Hafðu samband við ráðgjafana og kannaðu möguleika á námi og námskeiðum á vegum Fræðslunetsins. Kannaðu líka möguleika á öðru námi.
Hefur þú áhuga á að:
Auka möguleika þína í starfi og á vinnumarkaði?
Bæta við þig þekkingu?
Skoða námsmöguleika?
Setja þér markmið í námi og starfi?
Fá aðstoð við að takast á við hindranir í námi?
Fá leiðsögn um árangursrík vinnubrögð í námi og starfi?
Rækta sjálfan þig?
Fara í áhugasviðsgreiningu?
Með því að ræða við náms- og starfsráðgjafa getur þú:
Fengið upplýsingar um nám og störf.
Fengið aðstoð við að kanna áhugasvið þitt og færni.