Search
Close this search box.

Ráðgjöf á þínum forsendum

Markhópur framhaldsfræðslunnar á rétt á gjaldfrjálsu viðtali við ráðgjafa Fræðslunetsins. Viðtalspantanir eru í síma 560 2030. Einnig er hægt að hafa samband með netpósti sandra[hjá]fraedslunet.is | kristin[hjá]fraedslune solveig[hjá]fraedslunet.is eða eydis[hjá]fraedslunet.is

Ráðgjafarnir eru með aðsetur í Fjölheimum Tryggvagötu 13 á Selfossi. Þær fara einnig reglulega á aðrar starfsstöðvar Fræðslunetsins á Hvolsvelli, Vík og Höfn og víðar sé eftir því óskað.
Hafðu samband við ráðgjafana og kannaðu möguleika á námi og námskeiðum á vegum Fræðslunetsins. Kannaðu líka möguleika á öðru námi.

Hefur þú áhuga á að:

    • Auka möguleika þína í starfi og á vinnumarkaði?
    • Bæta við þig þekkingu?
    • Skoða námsmöguleika?
    • Setja þér markmið í námi og starfi?
    • Fá aðstoð við að takast á við hindranir í námi?
    • Fá leiðsögn um árangursrík vinnubrögð í námi og starfi?
    • Rækta sjálfan þig?
    • Fara í áhugasviðsgreiningu?

Með því að ræða við náms- og starfsráðgjafa getur þú:

  • Fengið upplýsingar um nám og störf.
  • Fengið aðstoð við að kanna  áhugasvið þitt og færni.
  • Fengið aðstoð við að setja þér raunhæf markmið.
  • Fengið upplýsingar um styrki.

Náms- starfsráðgjafi vinnur samkvæmt siðareglum félags náms- og starfsráðgjafa og er bundinn trúnaði um málefni ráðþega.  

Námsráðgjafar Fræðslunetsins

Sandra D. Gunnarsdóttir
Sandra D. Gunnarsdóttir
Eydís Katla Guðmundsdóttir
Sólveig R. Kristinsdóttir
Kristín Elfa Ketilsdóttir
Kristín Elfa Ketilsdóttir