Starfsmannabreytingar verða hjá Fræðslunetinu í upphafi haustannar. Margrét Gauja Magnúsdóttir verkefnastjóri sem var í 50% stöðuhlutfalli á Höfn hefur látið af störfum. Eyrún Guðmundsdóttir verkefnastjóri á Höfn bætir við sig 30% stöðuhlutfalli og leitað verður til annarra aðila Höfn með einstök verk- og þjónustukaup.
Árdís Óskarsdóttir ritari í Fjölheimum á Selfossi lætur nú af störfum eftir áralanga þjónustu hjá Fræðslunetinu. Við ritarstarfinu tekur Oddný Sigríður Gísladóttir, sem hefur starfað í nokkurn tíma hjá Fræðslunetinu við ýmis störf. Í kjölfarið verðu auglýst á næstunni eftir starfsmanni í það starf sem útaf stendur.