INNA    HAFA SAMBAND     NÁMSVER

Search
Close this search box.
Athugið að Fræðslunetið er lokað vegna sumarleyfa 1. júlí – 6. ágúst.

grm-hvolsv

Alls luku 12 nemendur námi í Grunnmenntaskóla á Hvolsvelli í dag 13. desember. Námið hefur staðið yfir frá því 12. september og er það 300 stunda langt. Alls hófu 14 nemendur nám í haust en 12 luku því eins og áður segir. Þetta er í fyrsta sinn sem Grunnmenntaskóli er haldinn í Rangárvallasýslu og var ekki annað að heyra á þátttakendum en að þeir væru ánægðir með að hafa fengið tækifæri til að rifja upp og læra ýmislegt nýtt. Helstu kennslugreinar eru íslenska, stærðfræði, enska, upplýsingatækni og sjáflstyrking.

Fyrirhugað er að eftir áramótin hefjist kennsla í almennum bóklegum greinum, þ.e. íslensku, stærðfræði, ensku og dönsku á námsleiðinni Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum. Reikna má með að kennsla fari fram frá kl. 17 á daginn fjóra daga vikunnar. Þeir sem hafa áhuga á því námi er bent á að tala við Steinunni í síma 4835189 eða senda tölvupóst á  steinunnosk@fraedslunet.is

Smelltu hér til að skoða fleiri myndir frá útskriftinni.