Útskrift á námsbrautum hjá Fræðslunetinu. 

Þann 27. maí sl. var útskriftarhátíð hjá Fræðslunetinu. Að þessu sinni útskrifuðust 33 námsmenn af
fimm námsbrautum. Útskrifað var af Félagsliðagátt, Leikskólaliða- og stuðningsfulltrúabrú,
Menntagrunni, Menntastoðum og Stökkpalli.
Að þessu sinni flutti Birgitta Lára Herbertsdóttir, sem útskrifaðist úr Félagsliðagátt, ávarp fyrir hönd
námsmanna og hafði hún þetta að segja.
,,Ég vil byrja á að óska samnemendum mínum innilega til hamingju með útskriftina í dag. Við getum
öll verið stolt af okkur – þetta hefur ekki verið sjálfgefið. Við höfum lagt okkur fram, og staðið þetta af
okkur – og nú stöndum við hér í dag. Með höfuðið hátt og breitt bros!
Ég hóf námið mitt við Fræðslunetið árið 2022, á Leikskólaliðabrú. Ég hafði ekki verið í skóla síðan
2010 og verð að viðurkenna að það var óneitanlega svolítið ógnvekjandi að stíga aftur í nám eftir svo
langan tíma. En ég fann fljótlega að Leikskólaliðabrúin var ekki rétti staðurinn fyrir mig – eftir tvær
annir ákvað ég að færa mig yfir í Félagsliðagátt – og það var besta ákvörðun sem ég hef tekið.
Ástæðan fyrir því að ég datt út úr námi upphaflega var einföld: lífið gerðist. Ég flýtti mér að verða
fullorðin og eignaðist mitt fyrsta barn aðeins 19 ára gömul. Eins og margir þekkja, þá getur það að
vera foreldri, á vinnumarkaði, í húsnæðisbaráttu eða atvinnuleysi verið meira en fullt starf. Námið
verður að víkja – það virkar stundum bara ómögulegt.
Auglýsing frá Fræðslunetinu uppá töflu á leikskólanum sem ég var að vinna í kveikti áhugann á námi
og ég fann að Fræðslunetið er hannað fyrir fólk eins og mig, sveigjanlegt, aðgengilegt og einstakt.
Fullkomið fyrir fólk sem hefur ekki alltaf möguleika á dag- eða kvöldskóla, en vill læra og vaxa. Það
sem heillaði mig mest var að áfangarnir eru kenndir einn í einu – og það gerði gæfumuninn fyrir mig
með tvö börn, heimili og í 100% vinnu hefði hefðbundið nám verið nær ómögulegt – en hér fann ég
leið sem virkaði.
Ég skráði mig einnig í raunfærnimat og reynslan af því var líka algjör opinberun. Þar fékk ég að sjá
svart á hvítu að öll þessi reynsla mín – á vinnumarkaði og í lífinu sjálfu – skiptir máli. Það sem ég hafði
lært með höndunum og hjartanu, var metið til eininga. Það gaf mér bæði aukið sjálfstraust og innsýn
í eigin styrkleika.
Andinn í skólanum hefur verið yndislegur, bæði kennarar og samnemendur hafa skapað umhverfi
sem er hlýlegt, hvetjandi skemmtilegt og faglegt. Ég veit ekki með ykkur, en ég hef fundið fyrir auknu
sjálfsöryggi. Ég sé nú að ég er færari um miklu meira en ég hélt.
Kæru samnemendur – við erum hér í dag ekki vegna þess að allt hafi verið auðvelt, heldur vegna þess
að við gáfumst ekki upp. Við sýndum þrautseigju, trú og elju.
Að lokum vil ég segja:
Það er aldrei of seint að byrja aftur. Það er aldrei of seint að finna sjálfan sig, eða stefna að draumi
sem virðist óraunhæfur. Við höfum sýnt að við getum það og framtíðin, hún er björt.
Við erum að stíga inn í næsta kafla með þekkingu, styrk og trú á okkur sjálfum.
– Til hamingju með daginn. Takk fyrir
Fræðslunetið óskar öllum útskriftarnemendum hjartanlega til hamingju með áfangann, velfarnaðar í
framtíðinni og að allir draumar þeirra megi rætast.