Search
Close this search box.

IN ENGLISH Emergency Response Plan for the COVID-19

IN POLISH Plan postępowania w związku z COVID-19 

Markmið þessarar viðbragðsáætlunar er að taka á óvissuþáttum er tengjast heimsfaraldri Covid19 veirunnar.  Markmið áætlunarinnar er að tryggja viðbrögð allra hlutaðeigandi við að halda nauðsynlegri starfsemi stofnunarinnar gangandi við slíkar aðstæður. Í kjölfar þess að neyðarstigi hefur verið lýst yfir mun starfsfólk Fræðslunetsins fylgjastvel með stöðunni á degi hverjum og fylgja leiðbeiningum sóttvarnarlæknis í hvívetna. Nýjustu upplýsingar er ávallt að finna á vef Landlæknisembættisins: www.landlaeknir.is

Starfsemi fræðslustofnana þegar neyðarstigi hefur verið lýst yfir

Menntamálaráðuneytið hefur sent frá sér að eftirfarandi áherslur skulu gilda á neyðarstigi:

Vegna húsnæðis/aðstöðu í Fjölheimum

Gerðar hafa verið ráðstafanir vegna veirunnar í Fjölheimum. Upplýsingar um aukið hreinlæti eru vel sýnilegar og á þremur tungumálum. Spritt er aðgengilegt víða um húsið og í öllum kennslustofum, einnig er boðið upp á hanska við innganginn. Góður aðgangur er að handþvotti á salernum hússins. Gerðar hafa verið ráðstafanir varðandi birgðir af spritti, hönskum og grímum. Fyrirtækið Hreint, sem sér um þrif í Fjölheimum, hefur verið beðið um að endurskoða þrifaáætlun sínatil að draga úr smithættu

Vegna starfsfólks og nemenda Fræðslunetsins

  1. Komi til þess að einn eða fleiri starfsmenn hjá Fræðslunetinu smitist af veirunni eða þurfi að fara í sóttkví verður reynt eftir fremsta megni að halda starfseminni gangandi. Starfsfólk Fræðslunetsins á þess kost að geta unnið heiman frá sér, eins og aðstæður og ástand viðkomandi leyfa Eftir atvikum getur námskeið sem viðkomandi  verkefnastjóri kann að stýra verið fellt niður. Skoðuð verða úrræði til að koma í veg fyrir slíkt.  Það sama á við um námsráðgjafa og stjórnanda; þeir reyna eftir megni að vinna heiman frá sér.
  2. Ef kennarar sem starfa sem verktakar hjá Fræðslunetinu eru settir í sóttkví er reynt að gera ráðstafanir með að viðkomandi geti kennt í gegnum fjárkennslubúnað.  Ef kennari veikist þá er námskeiði frestað eða eftir atvikum fellt niður. 
  3. Þurfi nemandi eða hópur nemenda í sóttkví, skal reynt að gera þeim kleift að halda áfram námi sínu í gegnum fjarkennslubúnað.
  4. Sé nemandi eða nemendahópur kvíðinn varðandi framhald náms skulu starfsmenn fara yfir málin með viðkomandi og vera upplýsandi, lausnamiðaðir og róandi í viðbrögðum sínum.
  5. Veikist nemandi og þarf að draga sig úr námi vegna þess er farið eftir ráðleggingum sóttvarnarlæknis um hugsanlegar takmarkanir og umgengni annarra í kjölfarið.  Reynt skal eins og hægt er að viðkomandi geti síðar haldið áfram námi eða lokið námi.
  6. Komi til lokunar húsnæðis (samkomubanns) er farið eftir verklagsreglum Fræðslunetsins varðandi upplýsingagjöf og framhald starfseminnar en henni verður framhaldið að einhverju leyti t.d. í gegnum fjarkennslubúnað. Upplýsingar meðan á samkomubanni stendur eru mikilvægar svo og upplýsingar um með hvaða hætti starfsemin hefst aftur.

Samskiptaleiðir

Hægt er að senda fyrirspurnir og ábendingar varðandi heimsfaraldurinná netfangið: fraedslunet@fraedslunet.is    Símsvörun er í síma 560 2030.   
Upplýsingar umstöðu mála hjá Fræðslunetinu munu birtast á www.fraedslunet.is

Ábyrgðaraðili: Eyjólfur Sturlaugsson 

Síðast uppfært 11.03.2020