Virkninámskeið Fræðslunetsins eru fjölbreytt námskeið sem miða að því að efla færni einstaklinga sem eru í starfsendurhæfingu eða atvinnuleit. Starfsfólk Fræðslunetsins hefur þróað í samstarfi við ýmsa sérfræðinga fjölda námskeiða. Námskeiðum fylgir oft einstaklings- og hóparáðgjöf með stuðningi og eftirfylgni. Námskeiðin eru sérsniðin að óskum þeirra aðila sem sinna einstaklingum í starfsendurhæfingu og atvinnuleit.
Samstarfsaðilar:
Vinnumálastofnun
Birta starfsendurhæfing Suðurlands
Virk starfsendurhæfing
Félagsþjónusta sveitarfélaga
Aðrir sem koma að virknitengdum úrræðum fyrir einstaklinga og hópa
Dæmi um námskeið:
Sjálfsstyrkingarnámskeið
Starfsleitarnámskeið
Upplýsingatækni
Skapandi smiðjur, t.d FABLAB
Fjármálanámskeið
Verkjameðferðarnámskeið
Hugræn atferlismeðferð (HAM)
Leiðbeinendur á námskeiðum eru sérfræðingar hver á sínu sviði með mikla reynslu í að vinna með fólki í starfsendurhæfingu eða atvinnuleit.