Raunfærnimat í leikskólaliðanámi 

Fyrir hverja er raunfærnimatið? 

Raunfærnimat í leikskólaliða er ætlað einstaklingum sem hafa starfað með börnum, til dæmis á leikskólum eða í annarri starfsemi sem tengist uppeldi og umönnun barna. 

Hvað get ég fengið mikið metið? 

Í raunfærnimati er metin sú reynsla og þekking sem þú hefur aflað þér í starfi með börnum. Út frá niðurstöðum matsins getur þú fengið hluta leikskólaliðanáms metinn. 

Hvar get ég klárað námið? 

Fræðslunetið býður upp á nám í leikskólaliða-brú, námið er fjórar annir og lýkur með útskrift sem leikskólaliði. Að náminu loknu er hægt að fara í framhaldsskóla og klára viðbótarnám til stúdentsprófs.  

Nánari upplýsingar um leikskólaliðabrúnna má finna með því að smella hér.

Eftir raunfærnimat getur þú einnig lokið því sem upp á vantar í námi fyrir leikskólaliða í framhaldsskólum sem bjóða upp á námið. 

Hverju breytir það fyrir mig ef ég klára námið? 

Eftir að hafa lokið leikskólaliðanáminu styrkir þú faglega stöðu þína og möguleika á störfum í leikskólum og í starfi með börnum.