Félagsliðagátt hjá Fræðslunetinu
Námsbraut

Félagsliðagátt hjá Fræðslunetinu

Sveigjanleg og hagnýt námsleið fyrir þig sem starfar í umönnunarstörfum og vilt vinna markvisst að formlegri menntun sem félagsliði.

📅
Umsóknir Opið fyrir umsóknir
📚
Skipulag Einn áfangi í einu
💻
Kennsla Miðvikudagar kl. 17:15–20:15
Lengd 4 annir
🌐
Tungumál Íslenska
💰
Verð 325.000 kr.

Viltu styrkja þig í starfi og vinna að formlegri menntun sem félagsliði?

Félagsliðagátt hjá Fræðslunetinu er sveigjanleg námsleið fyrir fólk sem starfar í umönnunarstörfum. Námið er sniðið að raunverulegum aðstæðum í vinnu og fjölskyldulífi og hefur skýra tengingu við störf í heilbrigðis- og félagsþjónustu.

Um námið

Félagsliðagátt er fyrir þig sem starfar við umönnun aldraðra, fatlaðra eða í heimaþjónustu og vilt bæta við þig þekkingu sem nýtist strax í starfi. Námið sameinar fræði og verklega nálgun á aðgengilegan hátt og styður þig í að byggja upp fagmennsku, öryggi og færni til að takast á við fjölbreytt verkefni í heilbrigðis- og félagsþjónustu.

Í náminu færðu þekkingu og verkfæri sem styrkja þig í daglegum störfum, meðal annars í:

  • faglegum og virðingarríkum samskiptum
  • skilningi á ólíkum aðstæðum fólks og mikilvægi umhyggju og virðingar
  • öldrunarferli og þeim breytingum sem fylgja hækkandi aldri
  • uppbyggingu og hlutverki félagslegrar þjónustu

Námið er skipulagt með það í huga að auðvelt sé að samræma það vinnu og daglegu lífi. Þú hlustar á fyrirlestra heima og tekur svo þátt í verkefnatímum einu sinni í viku á miðvikudögum frá kl. 17:15–20:15. Nemendur geta valið að mæta í tíma í húsnæði Fræðslunetsins á Selfossi eða á Teams.

Með því að taka einn áfanga í einu verður námið skýrt, skipulagt og aðgengilegt. Þú tekur virkan þátt í verkefnum og umræðum, færð reglulega endurgjöf og byggir þannig upp bæði faglega hæfni og aukið sjálfstraust. Hver áfangi stendur yfir í 3–5 vikur.

Upplýsingar um styrki fyrir náminu

Markmið námsins

Námið er hannað til að efla þá hæfni sem skiptir mestu máli í umönnunarstörfum, þar á meðal:

  • fagvitund og aukið sjálfstraust í starfi
  • fagleg og örugg samskipti
  • betri skilning á margbreytilegum aðstæðum fólks
  • þekkingu á fötlunum, öldrun og félagslegri þjónustu
  • hæfni til að styðja einstaklinga í daglegu lífi af öryggi og virðingu

Þú færð einnig þjálfun í að:

  • eiga samskipti sem byggja á virðingu og trausti
  • veita umönnun og aðstoð í fjölbreyttum aðstæðum
  • styðja félagslega virkni og þátttöku
  • beita siðfræði og gagnrýninni hugsun í starfi
  • mæta fólki með ólíkar þarfir af fagmennsku og næmni
Fyrir hverja er námið?

Félagsliðagátt hentar sérstaklega vel þér sem:

  • starfar við umönnun aldraðra, fatlaðra eða í heimaþjónustu
  • vilt efla þig faglega og fá menntun sem nýtist beint í starfi
  • leitar að sveigjanlegu námi sem hægt er að stunda samhliða vinnu og óháð búsetu

Námið fellur undir markhóp framhaldsfræðslu samkvæmt reglum Fræðslusjóðs. Skilmálar og úthlutunarreglur Fræðslusjóðs

Inntökuskilyrði

Til að hefja námið þarftu að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  • að vera 22 ára eða eldri
  • að hafa unnið að lágmarki eitt ár í fullu starfi í umönnunarstörfum
  • að hafa lokið um 190 klst. af starfstengdum námskeiðum á vegum símenntunarmiðstöðva, stéttarfélaga, sveitarfélaga eða annarra aðila

Dæmi um námskeið sem geta nýst eru fagnámskeið, starfsnám stuðningsfulltrúa eða grunn- og framhaldsnámskeið. Einnig geta framhaldsskólaáfangar eða raunfærnimat verið metið inn í námið.

Námsgreinar

Námið er fjórar annir og kennd ein önn í einu. Þú þarft þó ekki að taka annirnar í fastri röð. Ef þú byrjar t.d. þegar önn 4 er í gangi getur þú tekið önn 1 næst, síðan önn 2 og að lokum önn 3.

1. önn

  • Upplýsingatækni — 18.08.2026–01.09.2026
  • Samvinna og samskipti — 02.09.2026–30.09.2026
  • Íslenska fyrir félagsliða — 29.09.2026–20.10.2026
  • Fjölskyldan og félagsleg þjónusta — 29.10.2026–26.11.2026

2. önn

  • Aðstoð og umönnun
  • Enska fyrir félagsliða
  • Félagsleg virkni
  • Næringarfræði
  • Óhefðbundin samskipti

3. önn

  • Fötlun
  • Gagnrýnin hugsun og siðfræði
  • Kynja- og jafnréttisfræðsla
  • Öldrun

4. önn

  • Hegðun og atferlismótun
  • Lyfjafræði
  • Skyndihjálp
  • Stærðfræði fyrir félagsliða
  • Valgrein: Fatlanir og samfélag
  • Valgrein: Öldrun og samfélag

Skoða námskrá

Nánari upplýsingar
  • Námsmat byggir á mætingu og virkni í tímum.
  • Til að ljúka náminu þarftu að ná 80% mætingu.
  • Hjá Fræðslunetinu er hægt að taka 4 af 6 önnum félagsliðanáms.
  • Til að útskrifast og öðlast full réttindi sem félagsliði þarf að ljúka síðustu tveimur önnunum hjá framhaldsskóla sem býður upp á námið.
  • Þú gætir átt rétt á styrk til náms hjá stéttarfélagi eða starfsmenntasjóði.

Raunfærnimat: Ef þú hefur reynslu úr umönnunarstörfum gæti verið hægt að fá hluta námsins metinn í gegnum raunfærnimat. Það getur stytt leiðina í náminu og hjálpað þér að byggja á þeirri reynslu sem þú hefur þegar öðlast. Ef þú vilt kanna þennan möguleika er gott að hafa samband við náms- og starfsráðgjafa hjá Fræðslunetinu.

Þú getur fengið nánari upplýsingar hjá:

Eydís Katlaeydis@fraedslunet.is

Næsta skref

Viltu hefja nám í Félagsliðagátt?

Skráðu þig í námið og taktu næsta skref í átt að aukinni fagmennsku, öryggi og formlegri menntun sem félagsliði.

Skrá mig