Leikskólaliða- og stuðningsfulltrúabrú hjá Fræðslunetinu
Námsbraut

Leikskólaliða- og stuðningsfulltrúabrú

Hagnýt og sveigjanleg námsleið fyrir þig sem starfar með börnum í leikskólum og grunnskólum og vilt efla faglega þekkingu þína, styrkja stöðu þína í starfi og opna leiðir til frekara náms.

📅
Umsóknir Nám hefst 17. ágúst
📚
Skipulag Einn áfangi í einu Dreifnám
💻
Kennsla Miðvikudagar kl. 17:15–20:15
Lengd 4 annir
🌐
Tungumál Íslenska
💰
Verð 231.400 kr. Greitt hlutfallslega á önn

Viltu efla þig í starfi með börnum og byggja upp sterkari faglegan grunn?

Námið er fyrir þig sem vilt sameina nám og starf. Þú byggir upp traustan faglegan grunn í uppeldi, samskiptum og stuðningi við börn og ungmenni á sama tíma og námið er skipulagt þannig að það hentar vel með vinnu og fjölskyldulífi.

Um námið

Leikskólaliða- og stuðningsfulltrúabrú er hagnýt og sveigjanleg námsleið fyrir þig sem starfar með börnum í leikskólum og grunnskólum og vilt efla faglega þekkingu þína, styrkja stöðu þína í starfi og opna leiðir til frekara náms.

Í náminu öðlast þú þekkingu, færni og aukið sjálfstraust til að takast á við fjölbreytt verkefni í starfi með börnum og ungmennum. Áhersla er lögð á að styrkja fagmennsku og veita hagnýt verkfæri sem nýtast strax í daglegu starfi, meðal annars í:

  • faglegum og virðingarríkum samskiptum
  • þroska, leik og námi barna og ungmenna
  • vönduðum vinnubrögðum og árangursríku samstarfi
  • stuðningi við þátttöku, nám og vellíðan barna í skóla- og frístundastarfi

Námið er skipulagt með það í huga að auðvelt sé að samræma það vinnu og daglegu lífi. Þú hlustar á fyrirlestra heima og tekur svo þátt í verkefnatímum einu sinni í viku á miðvikudögum frá kl. 17:15–20:15. Nemendur geta valið að mæta í tíma í húsnæði Fræðslunetsins á Selfossi eða á Teams.

Með því að taka einn áfanga í einu verður námið skýrt, skipulagt og aðgengilegt. Þú tekur virkan þátt í verkefnum og umræðum, færð reglulega endurgjöf og byggir þannig upp bæði faglega hæfni og aukið sjálfstraust. Hver áfangi stendur yfir í 3–5 vikur.

Upplýsingar um styrki fyrir náminu

Markmið námsins

Markmið námsins er að efla þá þekkingu, færni og fagkunnáttu sem þarf til að takast á við ábyrg störf í uppeldi og stuðningi við börn og ungmenni. Sérstök áhersla er lögð á að styrkja:

  • fagvitund og sjálfstraust
  • fagleg samskipti og samstarf
  • skilning á þroska, námi og leik barna og ungmenna
  • hæfni til að lesa í aðstæður og bregðast faglega við
  • leikni í faglegum vinnubrögðum og rökvísi

Þú færð einnig þjálfun í að:

  • eiga samskipti og samstarf sem byggja á virðingu og trausti
  • styðja við nám, leik og þátttöku barna
  • beita gagnrýninni hugsun og siðfræði
  • tileinka þér skapandi og fagleg vinnubrögð
Fyrir hverja er námið?

Námið hentar sérstaklega þér sem vilt bæta við þig menntun samhliða starfi og byggja upp sterkari faglegan grunn til framtíðar. Það hentar sérstaklega þér sem:

  • starfar við uppeldi og umönnun barna í leikskólum eða grunnskólum
  • vilt styrkja þig í starfi, auka hæfni þína og undirbúa þig fyrir frekara nám eða ný tækifæri á vinnumarkaði
  • leitar að sveigjanlegu námi sem hægt er að stunda samhliða vinnu og óháð búsetu

Námið fellur undir markhóp framhaldsfræðslu samkvæmt reglum Fræðslusjóðs. Skilmálar og úthlutunarreglur Fræðslusjóðs

Inntökuskilyrði

Til að hefja námið þarftu að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  • að vera 22 ára eða eldri
  • að hafa að baki að minnsta kosti þriggja ára starfsreynslu við uppeldi og umönnun barna í leik- og/eða grunnskólum
  • að hafa lokið 230 kennslustundum af starfstengdum námskeiðum á vegum símenntunarmiðstöðva, stéttarfélaga, sveitarfélaga eða annarra aðila

Í sumum tilvikum er hægt að fá framhaldsskólaáfanga eða raunfærnimat metið inn í námið, sem getur stytt námsleiðina og auðveldað þér næstu skref.

Námsgreinar

Námið er fjórar annir og kennd ein önn í einu. Þú þarft þó ekki að taka annirnar í fastri röð. Ef þú byrjar t.d. þegar önn 4 er í gangi getur þú tekið önn 1 næst síðan önn 2 og að lokum önn 3.

1. önn

  • Upplýsingatækni (18.08.2026 - 01.09.2026)
  • Samskipti og samstarf (02.09.2026 - 30.09.2026)
  • Skapandi starf (07.10.2026 - 04.11.2026)
  • Uppeldisfræði (11.11.2026 - 09.12.2026)

2. önn

  • Skyndihjálp
  • Leikur sem náms- og þroskaleið
  • Íslenska-barnabókmenntir
  • Þroskasálfræði

3. önn

  • Gagnrýnin hugsun og siðfræði
  • Fatlanir

4. önn

  • Uppeldisfræði
  • Hegðun og atferlismótun
  • Þroski og hreyfing
  • Kennslustofan og nemandinn

Yfirlit yfir áfanga og brautarlýsingu fyrir Stuðningsfulltrúabrú

Yfirlit yfir áfanga og brautarlýsingu fyrir Leikskólaliðabrú

Nánari upplýsingar
  • Námsmat byggir á mætingu og virkni í tímum.
  • Til að ljúka náminu þarftu að ná 80% mætingu.
  • Námið er skipulagt yfir fjórar annir og í öllum áföngum er notast við speglaða kennslu.
  • Þú gætir átt rétt á styrk til náms hjá stéttarfélagi eða starfsmenntasjóði.

Raunfærnimat: Ef þú hefur byggt upp reynslu í starfi með börnum gæti verið hægt að fá hluta námsins metinn í gegnum raunfærnimat. Það getur stytt leiðina í gegnum námið og hjálpað þér að nýta fyrri reynslu sem best. Ef þú vilt skoða þann möguleika er gott að hafa samband við náms- og starfsráðgjafa hjá Fræðslunetinu.

Þú getur fengið nánari upplýsingar hjá:

Eydís Katlaeydis@fraedslunet.is

Næsta skref

Viltu hefja nám í Leikskólaliða- og stuðningsfulltrúabrú?

Skráðu þig í námið og taktu næsta skref í átt að aukinni fagmennsku, sterkari stöðu í starfi og fleiri möguleikum til frekara náms.

Skrá mig