Fagnámskeið fyrir starfsfólk í félags- og heilbrigðisþjónustu
Námsbraut

Fagnámskeið fyrir starfsfólk í félags- og heilbrigðisþjónustu

Hagnýt og starfstengd námsleið fyrir þig sem starfar eða vilt starfa við umönnun. Námið styður þátttakendur í að efla öryggi, fagmennsku og hæfni í starfi.

📅
Nám hefst 9. september 2026
💻
Kennsla Teams mán. og mið. kl. 13:00–16:30
📍
Staðlotur Einu sinni í mánuði á Selfossi
Lengd Ein önn
🌐
Tungumál Kennsla á ensku, námsefni á íslensku
💰
Verð 93.500 kr.

Hefur þú áhuga á að efla þig í umönnunarstarfi?

Fagnámskeið fyrir starfsfólk í félags- og heilbrigðisþjónustu sameinar fræðilega þekkingu og hagnýta færni. Námið er skipulagt með það í huga að auðvelt sé að samræma það vinnu og daglegu lífi, með fjarkennslu á Teams og staðlotum á Selfossi.

Um námið

Fagnámskeið fyrir starfsfólk í félags- og heilbrigðisþjónustu er fyrir þig sem vilt efla þig í umönnunarstörfum og styrkja faglega hæfni þína á vettvangi heilbrigðis- og félagsþjónustu. Námið sameinar fræði og hagnýta nálgun á aðgengilegan hátt og styður þig í að byggja upp öryggi, fagmennsku og færni sem nýtist strax í starfi.

Í náminu öðlast þú þekkingu og verkfæri sem styrkja þig í daglegum störfum, meðal annars í faglegum samskiptum, hlutverki og ábyrgð í umönnunarstörfum, virðingu, vandaðri þjónustu og skilningi á fjölbreyttum aðstæðum fólks og þörfum í daglegu lífi.

Námið er skipulagt með það í huga að auðvelt sé að samræma það vinnu og daglegu lífi. Þú sækir fyrirlestra í fjarkennslu, tekur þátt í umræðum og vinnur verkefni yfir önnina. Auk þess mætir þú einu sinni í mánuði í staðlotur á Selfossi þar sem áhersla er lögð á verklega þjálfun, æfingar og hópverkefni.

Ef þú ert í vaktavinnu getur verið gagnlegt að ræða við yfirmann þinn um mögulegt svigrúm til þátttöku í kennslu á mánudögum og miðvikudögum frá kl. 13:00–16:30.

Kennsla fer fram á ensku en glærur og annað námsefni eru á íslensku. Boðið er upp á stoðtíma eftir hádegi á fimmtudögum í samráði við kennara ef þörf er á.

Upplýsingar um styrki fyrir náminu

Markmið námsins

Markmið námsins er að efla þá þekkingu, færni og fagvitund sem skiptir mestu máli í umönnunarstörfum.

  • Fagleg hæfni í umönnunarstörfum
  • Samskiptahæfni og fagleg framkoma
  • Sjálfstraust og öryggi í starfi
  • Hæfni til að takast á við fjölbreytt verkefni
  • Skilningur á þörfum skjólstæðinga og mikilvægi góðrar þjónustu
  • Fagleg vinnubrögð í umönnun
  • Árangursrík samskipti og samstarf við aðra
  • Sjálfstæð vinnubrögð og virk þátttaka í teymi
Fyrir hverja er námið?

Námið hentar sérstaklega vel þér sem:

  • starfar við umönnun aldraðra, fatlaðra eða í heimaþjónustu
  • vilt efla þig faglega og fá menntun sem nýtist beint í starfi
  • leitar að sveigjanlegu námi sem hægt er að stunda samhliða vinnu og óháð búsetu

Námið fellur undir markhóp framhaldsfræðslu samkvæmt reglum Fræðslusjóðs. Skilmálar og úthlutunarreglur Fræðslusjóðs

Inntökuskilyrði

Til að hefja námið þarftu að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  • að vera 20 ára eða eldri
  • að hafa áhuga á að starfa við umönnun
  • að hafa ekki lokið formlegu framhaldsskólanámi
Námsgreinar

Í náminu er meðal annars lögð áhersla á eftirfarandi viðfangsefni:

  • Starfshæfni og fagmennsku
  • Árangursrík samskipti
  • Starfsþróun og að efla færni
  • Jafnrétti og fjölmenningu
  • Lausnamiðaða hugsun
  • Gæðavitund og fagleg vinnubrögð

Skoða námskrá

Nánari upplýsingar
  • Námsmat byggir á mætingu og virkni í tímum.
  • Til að ljúka náminu þarftu að ná 80% mætingu.
  • Lokaverkefni er unnið samhliða náminu.
  • Hægt er að meta námið til allt að 10 eininga á framhaldsskólastigi.
  • Þú gætir átt rétt á styrk til náms hjá starfsmenntasjóðum stéttarfélaga.

Þú getur fengið nánari upplýsingar hjá:

Björkbjork@fraedslunet.is
Sandrasandra@fraedslunet.is

Næsta skref

Viltu efla þig í starfi?

Skráðu þig í námið og taktu næsta skref í átt að aukinni fagmennsku, öryggi og færni í umönnunarstörfum.

Skrá mig