| 📍 Staðsetning | 👨🏫 Kennari | 📅 Dagsetning | ⏰ Tími | 📆 Dagar | 💰 Verð | 🔗 Skráning |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Selfoss - Fjölheimar | Björgvin G. Sigurðsson | 9. sept – 2. nóv | 17:30 - 20:00 | Mánudagar og miðvikudagar | 59,500 kr. | Skráning |
Verkefnastjóri íslenskunámskeiða er Róslín Alma Valdemarsdóttir.
roslin@fraedslunet.is
S. 560 2039
Íslenska 2 er ætlað þeim sem hafa nokkra undirstöðu í íslensku og vilja byggja áfram ofan á grunninn.
Í námskeiðinu er haldið áfram að vinna með orðaforða og málnotkun sem tengist daglegu lífi og starfi. Lögð er áhersla á að nemendur geti gert sig skiljanlega í algengum aðstæðum, til dæmis í verslun, bakaríi, banka, pósthúsi og á veitingahúsi.
Nemendur æfa sig einnig í einföldum samræðum um dagleg málefni, svo sem veður, áhugamál og aðrar hversdagslegar aðstæður. Áfram er unnið með uppbyggingu íslenskunnar í gegnum hlustun, lestur, ritun, frásögn og samtöl. Einnig er haldið áfram að þjálfa íslensk hljóð og framburð.
Fjölbreyttum kennsluaðferðum er beitt og verkefni eru hönnuð þannig að þau reyni á færni nemenda við raunverulegar aðstæður.
Áfanginn samsvarar seinni hluta A1, eða A1.2, samkvæmt viðmiðum Evrópska tungumálarammans (CEFR).
Til að meta hvaða námskeið hentar best er hægt að skoða sjálfsmatsramma Europass. Þar er hægt að velja tungumál, bera saman færni í íslensku við eigið móðurmál og fá betri mynd af því hvaða námskeið hentar best.
Einnig má skoða sjálfsmatsramma Evrópuráðsins fyrir tungumálafærni, þar sem færniþrep CEFR eru útskýrð nánar.
Hægt er að greiða með VISA, kreditkorti, debetkorti eða Netgíró. Greiðslan er ekki skuldfærð fyrr en nokkrum dögum áður en námskeið hefst.
Athugið að umsókn telst aðeins gild þegar kortaupplýsingar hafa verið skráðar og skilmálar samþykktir neðst á umsóknarsíðunni.
Námskeiðið er styrkt af: