| 📍 Staðsetning | 👨🏫 Kennari | 📅 Dagsetning | ⏰ Tími | 📆 Dagar | 💰 Verð | 🔗 Skráning |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Fjölheimar, Selfoss | Ingibjörg Ingadóttir | 23. sept – 30. nóv | 17:00-19:00 | Mánudaga og miðvikudaga | 59,500 kr. | Skráning |
Verkefnastjóri íslenskunámskeiða er Róslín Alma Valdemarsdóttir.
roslin@fraedslunet.is
S. 560 2039
Íslenska 4 er ætluð þeim sem hafa nokkuð góða undirstöðu í íslensku og vilja efla færni sína enn frekar í daglegu lífi, starfi og samskiptum.
Í námskeiðinu er unnið með orðaforða og málnotkun sem tengist daglegu lífi, fjölskyldu og samfélagi. Sérstök áhersla er lögð á orðaforða sem tengist ýmsum störfum, samskiptum á vinnustað, atvinnuumsóknum, atvinnuviðtölum og launaseðlum.
Áfram er lögð áhersla á íslenskt samfélag og fjölmiðla með það að markmiði að auka færni nemenda í íslensku, efla sjálfstraust þeirra og styrkja samfélagslega vitund. Einnig er fjallað um mannleg samskipti, virðingu og góða umgengni.
Íslensk landafræði er kynnt lítillega og nemendur fá tækifæri til að segja frá eigin reynslu af ferðalögum um Ísland og önnur lönd.
Fjölbreyttum kennsluaðferðum er beitt og þjálfun í ritfærni eykst. Verkefni eru hönnuð þannig að þau reyni á færni nemenda við raunverulegar aðstæður og styrki þá í að halda uppi samræðum og gera sig sem best skiljanlega á íslensku.
Áfanginn samsvarar seinni hluta A2, eða A2.2, samkvæmt viðmiðum Evrópska tungumálarammans (CEFR).
Gert er ráð fyrir að nemendur sinni heimanámi á meðan á námskeiðinu stendur.
Til að meta hvaða námskeið hentar best er hægt að skoða sjálfsmatsramma Europass. Þar er hægt að velja tungumál, bera saman færni í íslensku við eigið móðurmál og fá betri mynd af því hvaða námskeið hentar best.
Einnig má skoða sjálfsmatsramma Evrópuráðsins fyrir tungumálafærni, þar sem færniþrep CEFR eru útskýrð nánar.
Hægt er að greiða með VISA, kreditkorti, debetkorti eða Netgíró. Greiðslan er ekki skuldfærð fyrr en nokkrum dögum áður en námskeið hefst.
Athugið að umsókn telst aðeins gild þegar kortaupplýsingar hafa verið skráðar og skilmálar samþykktir neðst á umsóknarsíðunni.
Námskeiðið er styrkt af: