Námskráin Menntastoðir lýsir námi á öðru þrepi hæfniramma um íslenska menntun. Námið er alls 1200 klukkustunda vinnuframlag nema og jafngildir 60 framhaldsskólaeiningum.
Námið er fyrir fólk með stutta formlega skólagöngu að baki og ætlað þeim sem stefna á nám við undirbúningsdeildir háskóla, ljúka framhaldsskóla eða vilja efla hæfni sína í almennum bóklegum greinum samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla. Markmið námsins er að styrkja jákvætt viðhorf til náms og auðvelda námsfólki að takast á við ný verkefni og mögulega áframhaldandi nám. Val námsþátta er einkum ætlað að styðja námsfólk í að efla eigin námstækni og samskipti, almennar bóklegar greinar, tölvu- og upplýsingatækni og lokaverkefni þar sem þjálfuð er sjálfstæð verkefnavinna með samþættingu námsþátta. Um er að ræða dreifnám með staðlotum, þannig að það hentar fólki á öllu Suðurlandi allt frá Höfn í Hornafirði til Þorlákshafnar.
Fyrir hvern? Námið er ætlað þeim sem ekki hafa lokið framhaldsskóla og hafa áhuga á frekara námi.
Til að sækja um námið þarf að greiða 20.000.- staðfestingargjald.
Námið kostar í heild 200.000 samkvæmt verðskrá FA 2024 sem gildir frá janúar 2024.
Þeir sem taka einstaka áfanga greiða hlutfallslega fyrir þá.
Verðið er birt með fyrirvara um breytingar á gjaldkrá FA.
Nánari upplýsingar veitir Eydís Katla Guðmundsdóttir í síma 560 2033 eða á eydis@fraedslunet.is
Miðað er við a.m.k. 80% viðveru og virka þátttöku til að ljúka náminu.
Nafn námsþáttar | Áfanganúmer | Klst.heild | Klst. fræðslu | Eining | Þrep | |
Samskipti og sjálfstraust | F-SASJ2FS | 40 | 20 | 2 | 2 | |
Námstækni | F-NÁTÆ2NF | 60 | 20 | 3 | 2 | |
Íslenska 1 | F-ÍSLE2RU | 100 | 40 | 5 | 2 | |
Íslenska 2 | F-ÍSLE2RE | 100 | 40 | 5 | 2 | |
Erlend tungumál 1 (Enska) | F-ERTU2OH | 100 | 40 | 5 | 2 | |
Erlend tungumál 2 (Danska) | F-ERTU2OL | 100 | 40 | 5 | 2 | |
Erlend tungumál 3 (Enska) | F-ERTU2OF | 100 | 40 | 5 | 2 | |
Stærðfræði 1 | F-STÆF2HS | 100 | 40 | 5 | 2 | |
Stærðfræði 2 | F-STÆR2ER | 100 | 40 | 5 | 2 | |
Stærðfræði 3 (algebra og annars stigs jöfnur) | F-STÆR2ME | 100 | 40 | 5 | 2 | |
Tölvu- og upplýsingatækni 0 | F-TÖUP2RT | 100 | 30 | 5 | 2 | |
Lokaverkefni – heimildavinna | F-LOKA2SV | 100 | 20 | 5 | 3 | |
Val | F-NÁVA2VN | 100 | 40 | 5 | 2 | |
Vinnuframlag námsmanns alls | 1200 | 460 | 60 | 2 |
Mánudagur til fimmtudags: 09:00-16:00
Föstudagur: 09:00-15:00
Laugardagur og sunnudagur: Lokað
©2023 Fræðslunetið – símenntun á Suðurlandi | Tryggvagötu 13 800 Selfoss | sími: 560 2030 | fraedslunet@fraedslunet.is | kt. 641199-2579