Search
Close this search box.

Persónuverndarstefna Fræðslunetsins | Data Protection Policy

In English
Po Polsku

 

Tilgangur persónuverndarstefnu:

Fræðslunetið leggur áherslu á trúnað og öryggi við meðferð persónuupplýsinga í starfsemi sinni. Persónuverndarstefnunni er ætlað að útskýra hvaða upplýsingum er safnað, hvernig þær eru notaðar og hvaða aðgangur er veittur að þeim. Stefnunni er ætlað að stuðla að sameiginlegum skilningi allra sem nota þjónustu Fræðslunetsins sem og þeirra sem starfa fyrir Fræðslunetið, sitja í stjórn þess eða starfa sem verktakar á vegum þess. Persónuverndarstefnan er byggð á ákvæði laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglugerð ESB nr. 2016/679 (GDPR) um vernd einstaklinga í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga og frjálst flæði slíkra upplýsinga. Stefnan gildir um alla þjónustu sem veitt er af Fræðslunetinu og aðilum sem sannanlega vinna á vegum þess.

Starfsemi Fræðslunetsins:

Fræðslunetið er miðstöð símenntunar á Suðurlandi og starfar sem slíkt á eftirfarandi sviðum:
• Þjónustuveitandi í umboði Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Sinnir náms- og starfsráðgjöf, sér um raunfærnimat og sinnir framhaldsfræðslu í tengslum við vottaðar námskrár Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.
• Þjónustuveitandi í umboði Fjölmenntar. Sinnir fræðslu fyrir fullorðið fatlað fólk.
• Þjónustuveitandi í umboði Rannís. Sinnir kennslu í íslensku sem öðru máli, fyrir innflytjendur.
• Þjónustuveitandi í umboði fyrir VIRK, Birtu starfsendurhæfingu Suðurlands og VMST. Sinnir úrræðum og námskeiðshaldi fyrir fólk í starfsendurhæfingu.
• Veitir fyrirtækjum ýmsa þjónustu í formi fræðslu, ráðgjafar og greininga.

Fræðslunetið er sjálfseignarstofnun, sem ekki er rekin í hagnaðarskyni, í eigu fjölmargra félagasamtaka, sveitarfélaga og fyrirtækja á Suðurlandi. Fræðslunetið er með þjónustusamning við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, starfar samkvæmt lögum um framhaldsfræðslu nr. 27/2010 og er viðurkenndur fræðsluaðili frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu.

Söfnun og notkun persónuupplýsinga hjá Fræðslunetinu:

Vinnsla Fræðslunetsins á persónuupplýsingum fer fram í skýrum tilgangi og byggist á lögmætum grundvelli samkvæmt persónuverndarlögum. Fræðslunetið leggur áherslu á að ekki sé gengið lengra í vinnslu persónuupplýsinga en þörf krefur.
Persónugreinanlegar upplýsingar eru gögn sem nýtast beint eða óbeint við að bera kennsl á eða hafa samband við tiltekinn einstakling. Upplýsingar sem eru ópersónugreinanlegar teljast ekki persónuupplýsingar.
Ný persónuverndarlög gera m.a. strangar kröfur um meðferð viðkvæmra persónuupplýsinga. Dæmi um viðkvæmar persónuupplýsingar eru um; heilsufar, trúarbrögð, aðild að stéttarfélagi, kynhneigð og þjóðernislegan uppruna. Undir tilteknum kringumstæðum safnar Fræðslunetið viðkvæmum persónuupplýsingum vegna starfsemi sinnar.
Fræðslunetið vinnur með eftirfarandi persónuupplýsingar:
• Persónugreinanlegar upplýsingar; nafn, kennitölu, netfang, símanúmer og heimilisfang
• Upplýsingar um stéttarfélagsaðild
• Upplýsingar úr sakarskrá
• Upplýsingar um heilsufar
• Upplýsingar um kyn
• Greiðslukortaupplýsingar
• Upplýsingar um námsferil/menntunarstig
• Upplýsingar um viðveru/mætingu í nám
• Upplýsingar um samskipti við Fræðslunetið
• Tæknilegar upplýsingar um hvernig vefur Fræðslunetsins er nýttur – IP-tala, tungumálastillingar, vafrastillingar, tímabeltisstillingar o.fl.
• Landfræðilegar upplýsingar – landfræðileg staðsetning
Fræðslunetið notar og vinnur með persónuupplýsingar í eftirtöldum tilgangi:
• Til að veita viðskiptavinum svör um fyrra nám hjá Fræðslunetinu
• Til að afgreiða umsóknir um nám/fræðslu
• Til að framkvæma raunfærnimat
• Í rekstrarlegum tilgangi; senda út reikninga, greiða verktökum og taka við greiðslum í gegnum greiðslukort.
• Til að bóka og framkvæma viðtöl hjá starfs- og námsráðgjöfum
• Til að halda utan um viðveru, einkunnir, námsferla og gefa út vitnisburð að námi loknu. Slíkar upplýsingar eru færðar og vistaðar í Innu.
• Vegna starfsmannahalds
• Vegna ráðninga á verktökum til fræðslustarfa
• Í markaðslegum tilgangi

Upplýst samþykki viðskiptavina og starfsmanna:

Vinnsla tiltekinna persónuupplýsinga er nauðsynleg þegar viðskiptavinir skrá sig í þjónustu hjá Fræðslunetinu. Skráningar einstaklinga í nám fara í gegnum vefsvæði Fræðslunetsins og þar haka þeir við yfirlýsingu um að þeir hafi kynnt sér persónuverndarstefnu Fræðslunetsins. Öllum sem sækja ráðgjöf, fara í raunfærnimat eða fá fræðslu á vegum fyrirtækja er kynnt persónuverndarstefnan. Starfsmenn og verktakar á vegum Fræðslunetsins samþykkja með undirskrift sinni að þeir hafi kynnt sér stefnuna.

Vefsvæði og samfélagsmiðlar:

Vefsvæði Fræðslunetsins safnar ýmsum upplýsingum er varðar öryggi vefsins eins og IP tölum notenda. Vefsvæðið notar einnig vafrakökur sem safnar upplýsingum um virkni, heimsóknartíðni og fleira. Notendur vefsvæðisins fá upp sprettiglugga þar sem þeim er boðið að samþykkja slíka vinnslu.
Fræðslunetið notar samfélagsmiðla til að miðla fréttum úr starfsemi sinni og til að auglýsa þjónustu sína. Ef birtar eru persónugreinanlegar upplýsingar eins og t.d. myndir er alltaf leitað samþykkis viðkomandi aðila áður.
Persónuupplýsingum deilt með þriðja aðila:
Við ákveðnar kringumstæður þarf Fræðslunetið að deila persónuupplýsingum til þriðja aðila. Slíkar aðstæður geta t.d. komið til vegna; samninga við hagsmunaaðila, vegna beiðni frá opinberum aðilum, vegna vinnu verktaka fyrir Fræðslunetið, vegna hýsingar á stafrænum gögnum í gagnaverum, vegna málaferla og vegna laga og reglugerða.
Fræðslunetið leggur áherslu á að persónuupplýsingar séu ekki afhentar þriðja aðila nema fyrir liggi vinnslusamningur milli aðilans og Fræðslunetsins um hvernig skuli unnið með viðkomandi upplýsingar.

Varðveisla persónuupplýsinga:

Starfsemi sinnar vegna þarf Fræðslunetið að varðveita ýmsar persónuuplýsingar samkvæmt lögum um framhaldsfræðslu nr. 27/2010. Sömuleiðis varðveitir Fræðslunetið ýmsar persónuupplýsingar er lýtur að starfsmannahaldi, upplýsingagjöf til Menntamálaráðuneytis og annarra samantekta á gögnum í markaðslegum og þróunarlegum tilgangi. Perónuupplýsingar eru varðveittar rafrænt hjá INNU gagnagrunni, rafrænt í gagnaverum Microsoft og gagnaverum 1984 og prentaðar í læstum hirslum.

Réttur einstaklinga:

Samkvæmt persónuverndarlögum eiga einstaklingar rétt á að fá aðgang að þeim persónuupplýsingum sem varðveittar eru um hann. Þá getur hann einnig í einhverjum tilvikum átt rétt á að persónuupplýsingar um sig verði leiðréttar, framsendar annað eða þeim eytt. 

Fyrirspurnir:

Berist Fræðslunetinu spurningar, kvartanir eða athugasemdir varðandi persónuverndarstefnu eða gagnavinnslu er málinu fylgt eftir af framkvæmdastjóra og/eða persónuverndarfulltrúa.

Uppfærslur á persónuverndarstefnu:

Persónuverndarstefna þessi er hluti af gæðahandbók Fræðslunetsins og er endurskoðuð reglulega. Breytingar á persónuverndarstefnunni geta verið kynntar án fyrirvara.

1. útgáfa nóvember 2018