Raunfærnimat fyrir stuðningsfulltrúa er ætlað einstaklingum sem starfa í skólum við stuðning við nemendur, til dæmis í grunn- eða framhaldsskólum.
Hvað get ég fengið mikið metið?
Í raunfærnimatinu er metin sú reynsla og þekking sem þú hefur aflað þér í starfi með nemendum. Út frá niðurstöðum matsins getur þú fengið hluta náms fyrir stuðningsfulltrúa metinn.
Hvar get ég klárað námið?
Fræðslunetið býður upp á nám í stuðningsfulltrúa-brú, námið er fjórar annir og lýkur með útskrift sem stuðningsfulltrúi. Að náminu loknu er hægt að fara í framhaldsskóla og klára viðbótarnám til stúdentsprófs.
Nánari upplýsingar um stuðningsfulltrúabrúna má finna með því að smella hér.
Eftir raunfærnimat getur þú einnig lokið því sem upp á vantar í námi fyrir stuðningsfulltrúa í framhaldsskólum sem bjóða upp á námið.
Hverju breytir það fyrir mig ef ég klára námið?
Með námi fyrir stuðningsfulltrúa styrkir þú hæfni þína í starfi með nemendum og eykur möguleika á störfum innan skólakerfisins.