Raunfærnimat í félagsliðanámi er ætlað einstaklingum sem hafa starfað við félagslega þjónustu eða stuðning við fólk, til dæmis í þjónustu við fatlað- eða aldrað fólk, unnið í búsetuúrræðum eða dagþjónustu.
Í raunfærnimatinu er metin sú þekking og reynsla sem þú hefur aflað þér í starfi. Út frá niðurstöðum matsins getur þú fengið hluta félagsliðanáms metinn.
Fræðslunetið býður upp á nám í félagsliðagátt, sem er fjögurra anna nám ætlað þeim sem vilja undirbúa sig fyrir frekara nám til félagsliða. Að náminu loknu tekur við framhaldsskólanám þar sem hægt er að ljúka þeim áföngum sem eftir standa til að klára félagsliðanámið.
Nánari upplýsingar um félagsliðagáttina má finna með því að smella hér.
Eftir raunfærnimat getur þú einnig lokið því sem upp á vantar í námi fyrir félagsliða í framhaldsskólum sem bjóða upp á námið
Eftir að hafa lokið félagsliðanáminu eykst fagleg hæfni þín og möguleikar á störfum við félagslega þjónustu og stuðning við einstaklinga.