Raunfærnimat í leikskólaliða er ætlað einstaklingum sem hafa starfað með börnum, til dæmis á leikskólum eða í annarri starfsemi sem tengist uppeldi og umönnun barna.
Hvað get ég fengið mikið metið?
Í raunfærnimati er metin sú reynsla og þekking sem þú hefur aflað þér í starfi með börnum. Út frá niðurstöðum matsins getur þú fengið hluta leikskólaliðanáms metinn.
Hvar get ég klárað námið?
Fræðslunetið býður upp á nám í leikskólaliða-brú, námið er fjórar annir og lýkur með útskrift sem leikskólaliði. Að náminu loknu er hægt að fara í framhaldsskóla og klára viðbótarnám til stúdentsprófs.
Nánari upplýsingar um leikskólaliðabrúnna má finna með því aðsmella hér.
Eftir raunfærnimat getur þú einnig lokið því sem upp á vantar í námi fyrir leikskólaliða í framhaldsskólum sem bjóða upp á námið.
Hverju breytir það fyrir mig ef ég klára námið?
Eftir að hafa lokið leikskólaliðanáminu styrkir þú faglega stöðu þína og möguleika á störfum í leikskólum og í starfi með börnum.