INNA    HAFA SAMBAND     NÁMSVER

Search
Close this search box.

Námsbrautir Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins

Hér má sjá hvaða formlega nám er í boði hverju sinni. Nám sem meta má til eininga á framhaldsskólastigi eða er undirbúningur fyrir frekara nám  og til að styrkja einstaklinga í starfi og einkalífi.  Einnig er hægt að taka staka áfanga á námsbrautunum. 

Námið er í heildina 151/161 eining á 2. og 3. þrepi. Hjá Fræðslunetinu er hægt að taka 81 einingu á 2. þrepi á fjórum önnum. Þátttakendur geta valið um sérhæfingu á sviði fötlunar- eða öldrunarlínu. 

Námið er fyrir fólk sem vill undirbúa sig og styrkja fyrir frekara nám í ensku, stærðfræði og upplýsingatækni. 

Námið tekur fjórar annir, kenndir eru tveir áfangar í senn. Fyrirlestrar eru teknir upp og deilt á netinu og á miðvikudögum eru verkefna- og umræðutímar. Hægt er að stunda námið bæði í fjar- og staðnámi. 

Námið er fyrir fólk með stutta formlega skólagöngu að baki og ætlað þeim sem stefna á nám við undirbúningsdeildir háskóla, ljúka framhaldsskóla eða vilja efla hæfni sína í almennum bóklegum greinum. Bæði fjar- og staðnám.