Hér eru upplýsingar um þróunarverkefni og fleiri samstarfsverkefni sem Fræðslunetið hefur unnið að og/eða eru í vinnslu. Einnig er hér hægt að nálgast námskrár sem gerðar hafa verið vegna þróunarverkefna.
- Starfstengd íslenska fyrir erlenda starfsmenn sem starfa á dvalar og hjúkrunarheimilum
- Tækifæri – þróun starfsnáms á Suðurlandi fyrir ferðaþjónustu Skoða skýrslu.
- Tækifæri – greining á þörf fyrir starfsmenntun á Suðurlandi
- Listnámsbraut
- Listnámsbraut er 180 stunda námsbraut. Áhersla er á sköpun, upplifun og þátttöku og er markmiðið m.a. að auka tækifæri fatlaðs fólks til að öðlast nýja reynslu í gegnum listnám.Þróun á nýju námi þar sem lögð er áhersla á að mæta þörfum fólks með mikla þroska- og hreyfihömlun og/eða einhverfs fólks. Námskrárgerð fer fram 2014-2015 og kennsla er fyrirhuguð 2015-2016.
- Nám og starf
- Námskrá nám og starf
- Nám og starf er 200 stunda starfstengt nám fyrir fólk með skerta náms- og/eða starfsfærni. Kennt veturinn 2014 – 2015. Vinnustaðakynningar og starfsþjálfun í samvinnu við ýmis fyrirtæki og stofnanir á Suðurlandi o.fl
- Námskrá nám og starf
- Efling samstarfs um mennta- og fræðastarf á Suðurlandi, skoða skýrslu
- Ull í mund, námskeið í fullvinnslu ullar, námskeið var tilraunakennt á haustönn 2014, Skoða skýrslu
- Þarfagreining á þörfum fatlaðs fólks á Suðurlandi fyrir starfsmenntun. Greiningu lokið. Skoða skýrslu.
- Vinnan lærðu og njóttu, 150 stunda starfsnám, haldið á vorönn 2013, þróun námskrár og kennslu. Verkefni lokið.
- “A job to be done” gerð enskunámsefnis fyrir fullorðna, lokið í júní 2013. Sjá kennslubók – Sjá kennsluleiðbeiningar
- Járningar, gerð námsefnis og námskeiðs í járningum. Tilraunakennsla á vorönn 2014. Verkefni lokið.
- Feti framar, námskeið fyrir fólk af erlendu bergi brotið. Námskeiðið var haldið skólaárið 2013-2014.
- Fagnámskeið starfsfólks leikskóla, samvinnuverkefni í fjarkennslu. Kennslu er lokið.
- Þarfagreining á þörf fyrir starfsmenntun á Suðurlandi. Sjá skýrslu.