Elfa Svanhildur Hermannsdóttir skrifar:
,,Einn af hornsteinum samfélagsins er að fólk geti sótt sér þá menntun sem hugur þess stendur til, óháð búsetu og efnahag. Samfélagsbreytingarnar eru hraðar, nú sem aldrei fyrr, og námsframboð þarf ætíð að taka mið af þeim. Símenntunarmiðstöðvar starfa í öllum landshlutum og gegna afar mikilvægu hlutverki. Ég dreg reyndar í efa að fólk geri sér almennt grein fyrir því hversu fjölbreytt verkefni eru á hendi þeirra. Á fámennari svæðum er gildi símenntunarmiðstöðvanna enn augljósara. Hið nána samstarf við nærumhverfið skiptir svo miklu máli. Ekki bara hvað varðar grunn- og framhaldsskóla, ekkert síður varðandi framhaldsfræðslu og símenntun.
Menntunin til fólksins
Á þeim tíma sem ég hef starfað að símenntunarmálum á Vestfjörðum hef ég styrkst í þeirri trú að það skipti miklu máli að færa menntunina nær fólkinu. Það er einfaldlega lykilatriði í því að fólk nýti sér það nám sem í boði er á hverjum tíma. Eðli símenntunarmiðstöðvanna um allt land er að skynja hjartsláttinn á þeim svæðum sem þær starfa og geta þannig brugðist skjótt við og sett upp nám með skömmum fyrirvara. Gott dæmi um þetta er námskeiðahald sem komið var á fót með skömmum fyrirvara í verkfalli sjómanna í byrjun síðasta árs. Við skynjum þarfirnar á okkar svæðum og vinnum náið með atvinnulífinu, verðum við óskum þess um tiltekin námskeið eða námslínur eða höfum frumkvæði að því að bjóða upp á slíkt.
Meira...
Sjö starfsmenn Reykjagarðs hlutu Fagbréf atvinnulífsins
Fræðslunetið afhenti í dag sjö starfsmönnum Reykjagarðs Fagbréf atvinnulífsins fyrir starfsfólk í matvælaiðnaði.
Fagbréfið er formleg viðurkenning á þeirri þekkingu, færni og hæfni sem starfsfólk hefur byggt upp í gegnum störf sín. Færnin var metin með raunfærnimati út frá hæfniviðmiðum starfsins.
Við óskum starfsmönnunum innilega til hamingju með þennan mikilvæga áfanga 👏
Einnig er ánægjulegt að sjá stjórnendur Reykjagarðs styðja starfsfólk sitt í starfsþróun og hvetja það áfram.
Fræðslunetið aðstoðar fyrirtæki við framkvæmd raunfærnimats og útgáfu Fagbréfa atvinnulífsins. ... See MoreSee Less
0 CommentsComment on Facebook
Vinnur þú með börnum?
Styrktu þig í starfi með hagnýtu námi.
Skráðu þig núna👇
fraedslunetid.is/leikskolaida-studningsfulltruabru/ ... See MoreSee Less
0 CommentsComment on Facebook
Kláraðir þú ekki framhaldsskóla?
Menntastoðir eru góð byrjun
Skráðu þig núna👇
fraedslunetid.is/menntastodir/ ... See MoreSee Less
0 CommentsComment on Facebook
Autumn registration is now open.
Learn practical Icelandic for daily life.
Find a course near you👇
fraedslunetid.is/islenska-fyrir-utlendinga-2/ ... See MoreSee Less
0 CommentsComment on Facebook
Skráning í haustnám er hafin ✨
Veldu nám sem styrkir þig í starfi og lífi – á þínum forsendum.
👉 Skoða námsleiðir
fraedslunetid.is ... See MoreSee Less
0 CommentsComment on Facebook
Við verðum á staðnum og tökum þátt í þessum skemmtilega viðburði. ... See MoreSee Less
Þetta efni er ekki í boði sem stendur
Þetta gerist yfirleitt vegna þess að eigandinn deildi innlegginu einungis með takmörkuðum hópi fólks, breytti hver getur séð innleggið eða því hefur verið eytt.0 CommentsComment on Facebook