Námsbrautir
Formlegt nám og námsbrautir sem styrkja stöðu þína í starfi og námi.
Formlegt nám og námsbrautir sem styrkja stöðu þína í starfi og námi.
Stig 1–5. Stað- og fjarnám.
Námskeið með stuðningi og aðgengi í forgangi.
Sérsniðin fræðsla, vinnustaðanámskeið og ráðgjöf.
Leiðsögn, markmið og næstu skref.
Mat á hæfni út frá reynslu og námi.
Stuðningur, færni og þátttaka — skref fyrir skref.
Námskeið á fjölbreyttum sviðum.

Þann 10. Janúar síðastliðinn fór fram árlegur hátíðarfundur Vísinda- og rannsóknarsjóðs Suðurlands. Fundurinn fór að venju fram í Fjölbrautaskóla Suðurlands að viðstöddum forseta Íslands og um 150 gestum sem komu víðsvegar að af Suðurlandi.
Hefð hefur verið fyrir því á hátíðarfundum að fá kynningu á einhverju verkefni sem sjóðurinn hefur styrkt. Þetta árið voru það Aníta Þorgerður Tryggvadóttir og Ingibjörg Steinunn Sæmundsdóttir styrkhafar 2016 sem kynntu sitt áhugaverða verkefni; Fjölþætt heilsurækt í sveitarfélögum.
Sveinn Aðalsteinsson stjórnarformaður sjóðsins fór yfir niðurstöðu dómnefndar sjóðsins vegna styrkþega fyrir árið 2018 og gerði grein fyrir niðurstöðum. Sjóðurinn ákvað að þessu sinni að styrkja tvö verkefni um kr. 750.000 – eða samtals kr. 1.500.000 -. Styrkhafar sjóðsins fyrir árið 2018 eru:
• Ingibjörg Lilja Ómarsdóttir vegna doktorsverkefnisins; Eyjafjallajökulsgos 2010 – áhrif á íbúa og enduruppbygging samfélaga. Í verkefninu er sjónum beint að seiglu samfélaga (community resilience) vegna náttúruhamfara. Kannað er hvernig íbúar, starfsfólk og viðbragðsaðilar í sveitarfélögunum Rangárþingi eystra og Mýrdalshreppi álitu sig í stakk búinir til að takast á við eldgos áður en Eyjafjallajökulsgosið árið 2010 hófst, hvaða áhrif gosið hafði og hvernig þessum samfélögum gekk að takast á við afleiðingar gossins.
• Ástrós Rún Sigurðardóttir vegna mastersverkefnisins; Þáttur félags- og menningarauðs í námi og menntun barna með fjölmenningarlegan bakgrunn. Í verkefninu verður leitast við að svara því hvaða áhrif menningar- og félagsauður foreldra og forráðamanna hefur á nám innflytjendabarna í Sveitarfélaginu Árborg og jafnframt að rannsaka hvernig grunnskólakennarar og annað fagfólk í skólasamfélaginu stuðla að fjölmenningarlegri menntun nemenda sinna.
Það var forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson sem afhenti styrkina og ávarpaði fundinn.

Ársfundur Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins var haldin á Grand hótel 29.nóvember s.l. Af því tilefni voru veittar viðurkenningar til fyrirmynda í námi fullorðinna, en sú viðurkenning hefur


Fræðslunetið hefur á undanförnum vikum útskrifað 114 námsmenn af 7 námsbrautum og úr nokkrum greinum raunfærnimats. Námið er mismunandi langt allt frá nokkrum vikum til tveggja ára eins og t.d. brúarnám. Námið má meta til eininga á framhaldsskólastigi og er því það sem kallað er formlegt nám.
Í vetur hefur Fræðslunetið að auki haldið fjölda námskeiða fyrir fyrirtæki og stofnanir og íslenskunámskeið fyrir útlendinga er stór þáttur í starfseminni. Helsti vaxtabroddurinn er þjónusta við fyrirtæki, einkum í ferðaþjónustu og greining fræðsluþarfa hjá fyrirtækjum og sveitarfélögum.
Við erum afar stolt af öllum okkar námsmönnum og óskum þeim innilega til hamingju með árangurinn. Hér fylgja nokkrar myndir af útskriftarhópunum í vor.
Sjö starfsmenn Reykjagarðs hlutu Fagbréf atvinnulífsins
Fræðslunetið afhenti í dag sjö starfsmönnum Reykjagarðs Fagbréf atvinnulífsins fyrir starfsfólk í matvælaiðnaði.
Fagbréfið er formleg viðurkenning á þeirri þekkingu, færni og hæfni sem starfsfólk hefur byggt upp í gegnum störf sín. Færnin var metin með raunfærnimati út frá hæfniviðmiðum starfsins.
Við óskum starfsmönnunum innilega til hamingju með þennan mikilvæga áfanga 👏
Einnig er ánægjulegt að sjá stjórnendur Reykjagarðs styðja starfsfólk sitt í starfsþróun og hvetja það áfram.
Fræðslunetið aðstoðar fyrirtæki við framkvæmd raunfærnimats og útgáfu Fagbréfa atvinnulífsins. ... See MoreSee Less
0 CommentsComment on Facebook
Vinnur þú með börnum?
Styrktu þig í starfi með hagnýtu námi.
Skráðu þig núna👇
fraedslunetid.is/leikskolaida-studningsfulltruabru/ ... See MoreSee Less
0 CommentsComment on Facebook
Kláraðir þú ekki framhaldsskóla?
Menntastoðir eru góð byrjun
Skráðu þig núna👇
fraedslunetid.is/menntastodir/ ... See MoreSee Less
0 CommentsComment on Facebook
Autumn registration is now open.
Learn practical Icelandic for daily life.
Find a course near you👇
fraedslunetid.is/islenska-fyrir-utlendinga-2/ ... See MoreSee Less
0 CommentsComment on Facebook
Skráning í haustnám er hafin ✨
Veldu nám sem styrkir þig í starfi og lífi – á þínum forsendum.
👉 Skoða námsleiðir
fraedslunetid.is ... See MoreSee Less
0 CommentsComment on Facebook
Við verðum á staðnum og tökum þátt í þessum skemmtilega viðburði. ... See MoreSee Less
Þetta efni er ekki í boði sem stendur
Þetta gerist yfirleitt vegna þess að eigandinn deildi innlegginu einungis með takmörkuðum hópi fólks, breytti hver getur séð innleggið eða því hefur verið eytt.0 CommentsComment on Facebook